Leik lokið: Breiðablik-Vestri 1-0 | Blikar náðu Víkingum á toppnum

Þorsteinn Hjálmsson skrifar
Blikar fagna marki Viktors Karls Einarssonar í dag.
Blikar fagna marki Viktors Karls Einarssonar í dag. Sýn Sport

Blikar unnu 1-0 sigur á Vestra í Bestu deild karla í fótbolta í dag og komust upp að hlið Víkinga á toppnum.

Viktor Karl Einarsson var sjóðheitur með Blikaliðinu í Evrópuleiknum í vikunni og hann fylgdi því eftir með því að skora sigurmarkið í dag.

Þetta var fyrsta deildarmark Viktors á leiktíðinni en þriðja mark hans í vikunni.

Vestramenn töpuðu þarna fjórða deildarleiknum í röð og liðið hefur nú ekki skorað í 536 mínútur í deild og bikar. Fimm leikir í röð án þess að skora í öllum keppnum.

Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi á eftir.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira