Fjörðurinn og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes Eiður Þór Árnason skrifar 24. maí 2026 18:25 Cristian Mungiu, leikstjóri Fjord, tók við verðlaununum frá leikkonunni Tildu Swinton á lokakvöldi Cannes í gær. EPA/SEBASTIEN NOGIER Norsk-rúmenska kvikmyndin Fjörður í leikstjórn Cristian Mungiu hlaut Gullpálmann á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi í gær. Þá fékk Minotaur eftir Andreï Zviaguintsev Grand Prix-verðlaunin. Þetta er í 79. skipti sem hátíðin fer fram.
Fjörður eða Fjord eins og hún nefnist á frummálinu er um norsk-rúmensku Gheorghiu-fjölskylduna sem sest að í þorpi í einangruðum norskum firði þar sem hún kynnist og tengist nágrönnum sínum þrátt fyrir ólíkan uppvöxt og bakgrunn. Þegar unglingurinn Elia Gheorghiu mætir í skólann með marbletti á líkamanum spyr fólk sig hvort það tengist þeirri hefðbundnu menntun og íhaldssömu trúargildum sem börnin fengu frá foreldrum sínum. Barnaverndaryfirvöld blanda sér í málið og endar það fyrir dómstólum. Leikstjórinn Cristian Mungiu ásamt aðalleikurunum Renate Reinsve og Sebastian Stan.Epa//SEBASTIEN NOGIER Rúmensk-bandaríski leikarinn Sebastian Stan og norska leikkonan Renate Reinsve fara með aðalhlutverkin í myndinni og leika foreldra Elia. Stan er meðal annars þekktur fyrir leik sinn í The Apprentice og Marvel-kvikmyndabálknum en Reinsve lék til að mynda í myndinni Affeksjonsverdi eða Sentimental Value í leikstjórn Joachim Trier. Gagnrýninn á Rússland Þetta er ekki í fyrsta sinn sem rúmenski leikstjórinn Cristian Mungiu fær Gullpálmann á þessari virtu kvikmyndahátíð í Cannes en hann hlaut hann einnig fyrir myndina 4 luni, 3 saptamâni si 2 zile árið 2007 sem þýðist sem 4 mánuðir, þrjár vikur og tveir dagar. Andrei Zviaguintsev, leikstjóri Minotaur, við frumsýningu myndarinnar á Cannes.EPA/TERESA SUAREZ Minotaur sem hlaut Grand Prix-verðlaunin að þessu sinni gerist í Rússlandi og fylgist með auðugri fjölskyldu þegar allsherjarinnrás Rússa inn í Úkraínu hefst árið 2022. Fjallar kvikmyndin um farsælan stjórnanda fyrirtækis sem finnur fyrir vaxandi viðskiptaþrýstingi og auknum óstöðugleika á heimssviðinu. Leiðir þetta til þess að vandlega skipulegt líf hans fer að einkennast af ofbeldi. Rússneski leikstjórinn Andreï Zviaguintsev hefur verið gagnrýninn á stjórnvöld í Kreml og þegar hann tók við verðlaununum í gær kallaði hann eftir því að Vladimír Pútín Rússlandsforseti myndi stöðva „slátrunina“ í Úkraínu.
Kvikmyndahátíðin í Cannes Menning Mest lesið Sagt að drulla sér heim þegar hún ætlaði að kjósa í fyrsta sinn Lífið „Formaður Sjálfstæðisflokksins átti eflaust flott úr“ Lífið Grafinn í sand í sólarhring Lífið Vill helst brenna myndir frá unglingsárunum Tíska og hönnun Krakkatía vikunnar: Bein, Grettir og gúrkutíð Lífið „Við erum bara tvö eftir“ Lífið Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Lífið samstarf „Ég viðurkenni alveg að ég mun sakna Tenerife“ Lífið Fréttatía vikunnar: Eldur, Karl III og Þjóðhátíð Lífið Fjörðurinn og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes Menning Fleiri fréttir Fjörðurinn og mynd um áhrif innrásar Rússa verðlaunuð í Cannes „Þetta parísarhjól sökkar“ Tónlistariðnaðurinn mikið til „klám og rúnk“ Lætur Parkinson ekki lengur stöðva sig Borgin vill breyta Ingólfstorgi í sumarmarkað: „Eins og þruma úr heiðskíru lofti“ Tíminn stóð í stað í bílveltunni Sjóðheitir listamenn í eina litríka sæng Benedict snýr aftur í Þjóðleikhúsið og Óresteia í útrás Heiðra Sigrúnu Eldjárn með sérstöku brunnloki í Lækjargötu Myndlistarkonan Rúna er látin Netflix setti leikárið í Borgó í uppnám Guðjón Friðriksson heiðursborgari Reykjavíkur Krefja Apple um íslensku Þakklát að þurfa ekki að hafa teppi á klósettinu Íbúar furða sig á horfnu listaverki Borgarleikhúsið sviptir hulunni af Trölla Villi vandræðaskáld valinn bæjarlistamaður Akureyrar Ævar Þór, Birna og Jón hlutu Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar „Hugur manns í þunglyndi er eineltishrotti“ Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Hafnfirðingar vinna að sýningu um Bó Þórdís Kolbrún og Dagur byrjuð með hlaðvarp saman Pétur Geir opnar nýja vinnustofu með einkasýningu Settu tærnar upp í loft og fengu knús Sjá meira