Bílar

Kaupir einn þýsku bílaframleiðendanna Nürburgring?

Finnur Thorlacius skrifar
Porsche 918 að setja hraðamet á Nürburgring.
Porsche 918 að setja hraðamet á Nürburgring.
Fyrir ríflega einu ári varð rekstraraðili Nürburgring akstursbrautarinnar gjaldþrota með himinháar skuldir á bakinu. Þrátt fyrir það hefur brautin verið opin síðan, en þýska ríkið er stærsti kröfuhafi og núverandi eigandi brautarinnar.

Margir hafa boðið í brautina síðan, en enginn þeirra hugnast eigandanum. Það gæti verið að breytast, en einhver af stóru bílaframleiðendunum í Þýskalandi hefur gert tilboð. Þar gæti verið um að ræða Daimler, móðurfyrirtæki Mercedes Benz, BMW eða Volkswagen Group.

Þessi fyrirtæki nota Nürburgring brautina mikið við prófanir á bílum sínum og því er þeim öllum í mun að brautinni verði ekki lokað. Ef að kaupum verður, væri það ekki í fyrsta skipti sem keppnisbrautir eru í eigu bílaframleiðenda. Honda á t.d. Suzuka og Motegi brautirnar, Toyota á Fuji brautina, Ferrari á Mugello brautina og Porsche á Nardo brautina, en þær tvær síðastnefndu eru á Ítalíu.

Auk þýsku bílaframleiðendanna þriggja hafa heyrst raddir þess efnis að ADAC, samtök bíleigenda í Þýskalandi, hafi gert tilboð í Nürburgring brautina. Umfram allt er tilvist Nürburgring brautarinnar vonandi tryggð og hún væri örugglega í öruggum höndum hjá öllum þessum aðilum.







×