Dómsmál

Dómsmál

Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað

Landsréttur hefur snúið við dómi héraðsdóms og sýknað mann af ákæru fyrir nauðgun. Konan hlaut margþætta áverka á borð við beinbrot. Talskona Stígamóta kallar eftir endurmenntun í Landsrétti og segir dóminn ótrúleg skilaboð út í samfélagið. Allt virðist mega ef rætt sé um BDSM.

Innlent
Fréttamynd

Sjö ára dómur

Sævar Hilmarsson og Kastriot Pepaj voru báðir dæmdir til sjö ára fangelsisvistar fyrir aðild sína að Dettifossmálinu svokallaða. Skipverjarnir tveir sem komu að málinu fengu báðir fimm ára dóm. 

Innlent
Fréttamynd

Dæmdur fyrir skatt­svik vegna B

Skemmtistaða- og áfengisverslunareigandi var dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir meiriháttar skattalagabrot, meðal annars í rekstri skemmtistaðarins B í Bankastræti. Hann þarf að afplána þrjá mánuði af fangelsisrefsingunni og greiða meira en hundrað milljónir í sekt.

Innlent
Fréttamynd

Einn fékk fimm ár, annar á­tján mánuði en þriðji sýknaður

Kareem M. M. Abufarhah hefur verið dæmdur til fimm ára fangelsisvistar fyrir tilraun til manndráps í bílakjallara undir Höfðatorgi í mars síðastliðnum. Mohamed Sayidali Ahmed var dæmdur til 18 mánaða fangelsisvistar fyrir stórfellda líkamsárás en þriðji maðurinn sem var ákærður, Qossay Ali Yahya Alsadi, var sýknaður.

Innlent
Fréttamynd

Máttu tæma lónið

Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms sem taldi að Orkuveita Reykjavíkur hefði verið í rétti þegar hún lét tæma Árbæjarlón til frambúðar. Rétturinn viðurkenndi þó að íbúi hefði haft lögvarða hagsmuni af tæmingunni enda byggi hann við nyrðri hluta lónsins og ásýnd svæðisins breyttist mikið.

Innlent
Fréttamynd

Margrét Löf í sex­tán ára fangelsi en heldur föðurarfinum

Landsréttur hefur staðfest dóm héraðsdóms um sextán ára fangelsisvist Margrétar Höllu Hansdóttur Löf, sem hún hlaut fyrir að ráða föður sínum bana á heimili þeirra við Súlunes á Arnarnesinu í Garðabæ í apríl í fyrra og að ráðast á móður sína. Kröfu hálfbróður hennar um að hún yrði gerð arflaus var vísað frá dómi.

Innlent
Fréttamynd

Veitinga­maður sektaður um tvö hundruð milljónir

Stefán Magnússon veitingamaður hefur verið dæmdur til 15 mánaða fangelsisvistar og greiðslu 200,7 milljóna króna sektar í Landsrétti, fyrir að hafa svikið undan skatti á árunum 2020 til 2023 þegar hann var framkvæmdastjóri og stjórnarmaður tveggja félaga, annars vegar Steikar ehf. og hins vegar Gourmet ehf. Félögin ráku veitingastaðina Reykjavík Meat og Sjáland, sem báðum hefur verið lokað.

Innlent
Fréttamynd

Tug­milljóna gjald­þrot fé­lags fíkniefnasmyglara

Ekkert fékkst upp í kröfur í þrotabú félagsins Heklarar ehf, sem námu tæplega 27 milljónum króna. Félagið rataði í fréttir í desember í fyrra þegar fjallað var um smygl á 5,6 kílóum á kókaíni. Í janúar var eigandi félagsins dæmdur í 3,5 ára fangelsi fyrir smyglið ásamt kærasta sínum og þriðja manni. Fyrir dómi sagði kærastinn að kærasta sín hefði í raun verið leppur fyrir hann.

Innlent
Fréttamynd

Skakkur á stolnum strætó

Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir að stela strætisvagni og aka honum undir áhrifum kannabiss í mars síðastliðnum.

Innlent
Fréttamynd

Aldraður læknir sparkaði í flug­freyju

Íslenskur læknir á níræðisaldri hefur verið ákærður fyrir óspektir um borð í flugi Icelandair á leið frá Baltimore í Bandaríkjunum í desember árið 2023 og fyrir að ráðast á flugfreyju í sama flugi.

Innlent
Fréttamynd

„Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkju­garðinn í Foss­vogi“

Verjandi Ming Ting Mancel í Edition-málinu segir hana hafa liðið illa að vera ein eftirlifandi eftir andlát eiginmanns síns og dóttur. Ming Ting hlaut tólf ára fangelsisdóm fyrir manndráp og brot í nánu sambandi. Verjandinn krafðist sýknu fyrir héraðsdómi og leggur áherslu á að málinu sé ekki lokið. Þá sé fjarri lagi að Ming Ting hafi ekki liðið illa við upprifjun á atburðum næturinnar örlagaríku í héraðsdómi.

Lífið
Fréttamynd

Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja

Héraðssaksóknari fer fram á sextán ára fangelsisvist yfir Georgios Ntentes sem er ákærður fyrir að hafa orðið Edilsson Martin Zingara að bana í nóvember 2025. Aðalmeðferðinni lauk í dag. 

Innlent
Fréttamynd

Skipti engu hvort um­mælin hafi verið sett fram í kald­hæðni

Landsréttur taldi það ekki skipta máli hvort ummæli Pálínu Helgu Þórarinsdóttur um Ingó veðurguð hafi verið sett fram í kaldhæðni enda væri ekki hægt að túlka þau á annan veg en að Ingó hefði nauðgað ungum konum og beitt þær ofbeldi. Ummælin voru dæmd dauð og ómerk.

Innlent
Fréttamynd

Ingó veðurguð hafði betur í Lands­rétti

Landsréttur hefur dæmt ummæli fimmtugrar konu í garð Ingólfs Þórarinssonar, Ingós veðurguðs, dauð og ómerk og gert henni að greiða Ingólfi 350 þúsund krónur auk einnar milljónar króna í málskostnað. Í ummælum sínum gerði konan því skóna að Ingólfur legði það í vana sinn að nauðga ungum konum og beita þær ofbeldi.

Innlent
Fréttamynd

Dæmdur fyrir mann­dráp af gá­leysi við Vík

Erlendur karlmaður hefur verið dæmdur til sex mánaða skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir manndráp af gáleysi, með því að verða valdur að banaslysi á Suðurlandsvegi við Vík í júní. Aðstandendur hins látna krefja manninn um tæplega fimmtíu milljónir króna í skaða- og miskabætur.

Innlent
Fréttamynd

Í mál gegn Ís­landi fyrir van­efndir á bókun 35

Eftirlitsstofnun EFTA hefur vísað máli gegn íslenska ríkinu til EFTA-dómstólsins vegna þess að íslensk lög tryggi ekki að EES-reglur haldi gildi sínu. Þannig hafi Ísland ekki innleitt skuldbindingar sínar samkvæmt bókun 35 við EES-samninginn.

Innlent