Körfubolti

Körfubolti

Fréttir af leikmönnum og liðum í körfubolta, bæði á Íslandi og erlendis.

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Upp­gjörið: Kefla­vík - Haukar 72-98 | Haukar unnu og geta varið titil sinn

Haukar sýndu mátt sinn og megin þegar liðið bar sigurorð af Keflavík, 72-98, í fjórða leik liðanna í undanúrslitum Bónus-deildar kvenna í körfubolta í Blue-höllinni í Keflavík í kvöld. Haukar fara þar af leiðandi með 3-1 sigur af hólmi í einvígi liðinna og eru komnir í úrslit þar sem liðið mætir annað hvort Njarðvík eða Grindavík.

Körfubolti
Fréttamynd

Hvergi nærri hættur með KR

Eftir bikarmeistaratitil og endurkomu í úrslitakeppni hafa KR-ingar samið á nýjan leik við þjálfara sinn Jakob Örn Sigurðarson sem og lykilmann liðsins. Stefnan er sett enn hærra. 

Körfubolti
Fréttamynd

„Ætla ekkert að hengja þetta bara á þá“

Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals, sagði að botninn hefði dottið úr leik hans manna undir lokin gegn Grindavík. Hann vill sjá sína lykilmenn spila betur í fjórða leiknum á mánudaginn en þeir gerðu í kvöld.

Körfubolti
Fréttamynd

Stjörnu­fólk stendur í ströngu á sunnu­daginn

Það stefnir allt í afar spennandi sunnudag fyrir stuðningsfólk Stjörnunnar. Karlalið félagsins tekur á móti ÍA í Bestu deild karla og stuttu seinna getur Stjarnan tryggt sér sæti í úrslitaeinvígi Bónus deildarinnar í körfubolta.

Körfubolti
Fréttamynd

„Þetta er smá spooky“

Kristófer Acox segir söknuð vera af Frank Aron Booker innan vallar er Valur sækir Grindavík heim í leik þrjú í undanúrslitaeinvígi liðanna í Bónus deild karla. Kristófer þekkir til meiðsla hans og segir að Frank Aron verði liðinu andlegur styrkur á hliðarlínunni.

Körfubolti
Fréttamynd

Heiðrar minningu mannsins síns með því að mæta í Síkið

Það er vandfundin betri stemning á Íslandi en í Síkinu á Sauðárkóki í úrslitakeppninni í körfubolta. Á meðal fastagesta eru tvær vinkonur, gallharðir stuðningsmenn Tindastóls, sem ferðast að sunnan og heiðra minningu eiginmanns annarrar þeirra með því að mæta á leikina.

Körfubolti