Andlát

Andlát

Fréttamynd

Davíð Odds­son er látinn

Davíð Oddsson, ritstjóri Morgunblaðsins og einn áhrifamesti stjórnmálamaður lýðveldistímans, er látinn. Hann lést á heimili sínu í Skerjafirði í gær. Davíð var 78 ára að aldri.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Trump: Khamenei látinn

Ayatollah Ali Khamenei, æðsti leiðtogi Íran, er sagður látinn eftir umfangsmiklar loftárásir Ísraelsmanna og Bandaríkjamanna á Íran í dag. Þetta segir Bandaríkjaforseti en aðsetur Khamenei í Teheran var lagt í rúst í árásunum í dag.

Erlent
Fréttamynd

Eric Dane er látinn

Leikarinn og hjartaknúsarinn Eric Dane er látinn. Hann var 53 ára. Dane, sem var hvað frægastur sem „McSteamy“ í Grey's Anatomy og nú síðast fyrir leik sinn í þáttunum Euphoria, sagði frá því í fyrra að hann hefði greinst með hreyfitaugungahrörnun (ALS).

Lífið
Fréttamynd

Hollenski skákmeistarinn og Íslandsvinurinn Jan Timman er látinn

Stórmeistarinn Jan Timman er látinn 75 ára að aldri. Hann var sannkölluð goðsögn í heimi skákarinnar. Hann er sá skákmaður sem náði einna lengst allra Hollendinga við svörtu og hvítu reitina og var sá eini sinnar kynslóðar sem gat veitt sovétska skólanum, sem á löngu tímabili var talinn óvinnandi vígi, einhverja keppni.

Innlent
Fréttamynd

Þjálfari danska dýnamítsins fallinn frá

Sepp Piontek, fyrrum landsliðsþjálfari Danmerkur, er látinn. Undir hans stjórn frá 1979-90 umbreyttist danska landsliðið og fyrir Dönum er þetta ein mesta goðsögn í þeirra knattspyrnusögu.

Fótbolti
Fréttamynd

Robert Duvall látinn

Bandaríski leikarinn Robert Duvall er látinn, 95 ára að aldri. Hann lést á heimili sínu í Virgina-fylki í Bandaríkjunum í gærkvöldi.

Lífið
Fréttamynd

Bud Cort látinn eftir lang­vinn veikindi

Leikarinn Bud Cort er látinn 77 ára að aldri. Cort var þekktastur fyrir hlutverk sitt í gamanmyndinni Harold and Maude. Samkvæmt Variety lést Cort í Connecticut eftir langvinn veikindi.

Lífið
Fréttamynd

James Van Der Beek látinn

Leikarinn James Van Der Beek, stjarna Dawson's Creek og sex barna faðir, er látinn 48 ára að aldri eftir baráttu við krabbamein. Leikarinn, sem er þekktastur fyrir hlutverk sín í Dawson's Creek og Varsity Blues, lést eftir baráttu við ristil- og endaþarmskrabbamein á þriðja stigi.

Lífið
Fréttamynd

Goddur jarð­sunginn

Útför Guðmundar Odds Magnússonar, listamannsins og hönnuðarins Godds, fór fram í Fríkirkjunni í dag. Mikill fjöldi var viðstaddur athöfnina en henni var einnig streymt í Listasafni Íslands.

Innlent
Fréttamynd

Söngvari 3 Doors Down látinn

Brad Arnold, söngvari og stofnmeðlimur bandarísku rokkhljómsveitarinnar 3 Doors Down, er látinn. Hann lést úr krabbameini. Hann var 47 ára. Arnold lætur eftir sig eiginkonu sína, Jennifer.

Lífið
Fréttamynd

Val­garð Már er látinn

Valgarð Már Jakobsson, fyrrverandi skólameistari og kennari, er látinn 54 ára að aldri. Greint er frá andlátinu á vef Kvennaskólans en Valgarð lést eftir erfið veikindi.

Innlent
Fréttamynd

Catherine O'Hara er látin

Leikkonan Catherine O'Hara er látin 71 árs að aldri. Hún er öllum landsmönnum kunnug fyrir að hafa farið með hlutverk móðurinnar í Home Alone en hún átti langan feril í sjónvarpi og á hvíta tjaldinu.

Lífið
Fréttamynd

Désirée prinsessa látin

Prinsessan Désirée Elisabeth Sibylla, Silfverschiöld-barónessa og eldri systir Karls Gústafs XVI Svíakonungs, lést miðvikudaginn 21. janúar 2026, 87 ára að aldri.

Lífið
Fréttamynd

Magnús Ei­ríks­son borinn til grafar

Magnús Eiríksson, einhver dáðasti dægurlagaperlusmiður landsins, var borinn til grafar í dag. Segja má að þjóðarsorg hafi brotist út þegar andlát hans spurðist.

Innlent