Dolly Parton látin Lovísa Arnardóttir skrifar 25. ágúst 2026 17:58 Dolly Parton hefur um árabgil verið ein stærsta tónlistarstjarna Bandaríkjanna. AP Bandaríska söngkonan Dolly Parton er látin 80 ára gömul. Hún lést í dag á heimili sínu í Nashville í Tennessee í Bandaríkjunum.
Bryan Seaver, frændi hennar, tilkynnti um andlátið á Facebook en hann hefur séð um öryggisgæslu hennar í tvo áratugi. Hann segir í tilkynningu að Dolly hafi beðið hann um að sjá um þessa tilkynningu fyrir mörgum árum. „Dolly lifði í ljósinu,“ segir hann í tilkynningunni og að nú sé hún þar með eiginmanni sínum og öðrum ættingjum. Eiginmaður hennar Carl Dean lést í fyrra. Tilkynninguna má sjá að neðan. „Líf hennar var sem glitrandi gimsteinn sem skein nógu skært fyrir allan heiminn að sjá. Dolly verður að eilífu fyrirmynd, ekki aðeins vegna tímalausrar tónlistar sinnar og afkastaríkra lagasmíða, heldur einnig vegna gáfna hennar, hlýju og góðvildar sem fékk okkur öll til að líða eins og við værum ein fjölskylda. Arfleifð Dolly Parton er ást, samkennd og seigla. Á sjö áratuga ferli sínum varð hún mörgum kynslóðum listamanna og aðdáenda innblástur með tónlist sinni og óbilandi skuldbindingu til að gera heiminn að betri stað,” segir í tilkynningu frá fjölskyldu hennar sem var birt á vef BBC. „Lög hennar munu áfram hljóma í eyrum fólks á öllum aldri og mannúðarstörf hennar munu hafa varanleg áhrif.“ Dolly Parton var söngkona, lagahöfundur, leikkona, mannvinur og viðskiptakona. Eftir að hafa náð árangri sem lagahöfundur kom fyrsta plata hennar, Hello, I'm Dolly, út árið 1967. Það var upphafið að 60 ára ferli og 50 hljóðversplötum. Parton hefur alltaf verið kölluð „drottning kántrítónlistarinnar“ og hefur ávallt verið ein af virtustu kántrísöngkonum sögunnar. Hún hlaut ýmsar viðurkenningar, þar á meðal ellefu Grammy-verðlaun og þrjú Emmy-verðlaun, auk tilnefninga til tveggja Óskarsverðlauna, þar á meðal heiðurs-Óskar fyrir mannúðarstörf árið 2025, sex Golden Globe-verðlauna og Tony-verðlauna. Parton seldi meira en 100 milljónir platna um allan heim og var því einn söluhæsti tónlistarmaður allra tíma. Parton samdi yfir 3.000 lög, þar á meðal I Will Always Love You sem náði tvisvar efsta sæti bandaríska kántrílistans og varð alþjóðlegur smellur í flutningi Whitney Houston, Jolene, Coat of Many Colors og 9 to 5. Þá lék hún einnig í kvikmyndunum 9 to 5 (1980) og The Best Little Whorehouse in Texas (1982), en fyrir þær báðar hlaut hún Golden Globe-tilnefningu sem besta leikkona, auk Rhinestone (1984), Steel Magnolias (1989), Straight Talk (1992) og Joyful Noise (2012). Fréttin hefur verið uppfærð.
Andlát Hollywood Bandaríkin Andlát Dolly Parton Tónlist Tengdar fréttir Eiginmaður Dolly Parton er látinn Carl Dean, eiginmaður bandarísku söngkonunnar Dolly Parton til nærri sex áratuga, er látinn, 82 ára að aldri. 4. mars 2025 07:39 Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Bandaríska söngkonan Dolly Parton tilkynnti á föstudag að hún ætlar að gefa eina milljón Bandaríkjadala í hjálparstarf vegna fellibylsins Helenu sem reið yfir Bandaríkin í síðustu viku. 6. október 2024 11:14 „Ég vona að ég muni deyja í miðju lagi“ Tónlistarkonan Dolly Parton hefur engan áhuga á því að setjast í helgan stein þrátt fyrir að vera orðin sjötíu og sjö ára gömul. Hún gaf nýlega út nýtt lag og von er á nýrri plötu frá henni á næstunni. 13. júlí 2023 14:09 Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning „Það er smá töffari í mér“ Tíska og hönnun Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira
Eiginmaður Dolly Parton er látinn Carl Dean, eiginmaður bandarísku söngkonunnar Dolly Parton til nærri sex áratuga, er látinn, 82 ára að aldri. 4. mars 2025 07:39
Dolly gefur 135 milljónir vegna Helenu Bandaríska söngkonan Dolly Parton tilkynnti á föstudag að hún ætlar að gefa eina milljón Bandaríkjadala í hjálparstarf vegna fellibylsins Helenu sem reið yfir Bandaríkin í síðustu viku. 6. október 2024 11:14
„Ég vona að ég muni deyja í miðju lagi“ Tónlistarkonan Dolly Parton hefur engan áhuga á því að setjast í helgan stein þrátt fyrir að vera orðin sjötíu og sjö ára gömul. Hún gaf nýlega út nýtt lag og von er á nýrri plötu frá henni á næstunni. 13. júlí 2023 14:09