Tíska og hönnun

Sturluð skvísulæti í stór­af­mæli

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Það var líf og fjör í fimmtugsafmæli NTC síðastliðinn fimmtudag.
Það var líf og fjör í fimmtugsafmæli NTC síðastliðinn fimmtudag. Þóra Ólafs

Íslenski tískurisinn NTC fagnaði fimmtíu ára rekstrarafmæli fyrr í október og eru tímamótin ansi merkileg í síbreytilegum tískubransanum hérlendis. Svava Johansen, forstjóri NTC, var aðeins sautján ára gömul þegar hún hóf störf hjá versluninni 17 sem þá var á Laugavegi og síðan þá hefur mikið vatn runnið til sjávar.

NTC rekur meðal annars verslanirnar Evu/GK, Companys, Kultur, GS Skó, Gallerí Sautján og Karakter og var tímamótunum fagnað með öllu starfsfólki á Vinnstofu Kjarval síðastliðinn fimmtudag. Gestir klæddust að sjálfsögðu sínu fínasta pússi og skvísulætin voru í hæstu hæðum. 

Hér má sjá vel valdar myndir frá gleðinni: 

Atli og Arnar tískustrákar. Þóra Ólafs
Svava Johansen og Björn Sveinbjörnsson.Þóra Ólafs
Íris, Snæþór, Jústa og Margrét Björg.Þóra Ólafs
Helga, Íris, Viktoría og Snæþór.Þóra Ólafs
Strákarnir í Sautján voru í góðu stuði.Þóra Ólafs
Helga, Íris, Snæþór og Viktoría glæsileg.Þóra Ólafs
Það er ekki að undra að gestir hafi verið einstaklega flott klæddir.Þóra Ólafs
Að sjálfsögðu báru skvísurnar fram afmælisköku og blys.Þóra Ólafs
Jústa, mannauðsstjóri NTC, og Íris markaðsstjóri skáluðu.Þóra Ólafs
Algjörar skvísur.Þóra Ólafs
Gleðin var í loftinu hjá Jústu.Þóra Ólafs
Svava Johansen tískudrottning.Þóra Ólafs
Þórður Úlfar Ragnarsson frá Kultur menn. Þóra Ólafs
Þorri og Bjössi flottir.Þóra Ólafs
Svava klæddist rauðri skyrtu og rauðum skóm við svart dress.Þóra Ólafs
Svönurnar í Kúltúr.Þóra Ólafs
Afmælisgleðin var við völd!Þóra Ólafs
Bjössi, Svava og Anton Fannar Johansen. Þóra Ólafs
Flottar pæjur.Þóra Ólafs
Fimmtugsafmælinu var fagnað með pompi og prakt.Þóra Ólafs
Glamúr og gleði.Þóra Ólafs
Linda og Selma Rúnars. Þóra Ólafs
Strákar í stemmara.Þóra Ólafs
Glæsilegir í jakkafötum.Þóra Ólafs
Birta Marína og Ester Ósk prúðbúnar. Zebra-mynstrið er mjög vinsælt um þessar mundir.Þóra Ólafs





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.