Flóttamenn

Flóttamenn

Fréttir af málefnum flóttamanna.

Fréttamynd

Ekkert sem bendi til þess að Víðir hafi stigið yfir strikið

Sérfræðingur í stjórnsýslurétti segir ekkert komið fram svo hægt sé að slá því föstu að formaður allsherjar og menntamála hafi brotið gegn lögum eða reglum með pólitískum afskiptum sínum af störfum Útlendingastofnunar. Málefnaleg rök geti legið fyrir því að Oscar Bocanegra hafi verið einn tekinn út fyrir sviga af þeim nítján sem voru á framkvæmdarlista um brottvísun.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ekkert kerfi lifir af pólitískan geð­þótta

Íslenskt samfélag stendur frammi fyrir raunverulegum og vaxandi áskorunum í útlendingamálum. Þessar áskoranir snúast ekki eingöngu um fjölda umsækjenda, aðlögun að íslensku samfélagi eða kerfislæga hluti.

Skoðun
Fréttamynd

„Þetta eru al­veg galin vinnu­brögð“

Víðir Reynisson, þingmaður Samfylkingarinnar og formaður allsherjarnefndar Alþingis, gefur lítið fyrir gagnrýni stjórnarandstöðunnar og segir að auðvitað sé um pólitísk afskipti að ræða. Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir vinnubrögð Víðis algjörlega galin.

Innlent
Fréttamynd

Boðar brottfararstöð fyrir hælis­leit­endur

Dómsmálaráðherra hyggst leggja fram frumvarp í haust um brottfararstöð fyrir hælisleitendur sem hafa fengið synjun um dvalarleyfi en fara ekki sjálfviljugir úr landi. Hún segir óboðlegt og ómannúðlegt að fangelsi landsins séu yfirfull af hælisleitendum sem bíði brottvísunar.

Innlent
Fréttamynd

Mót­mæltu brott­vísun Oscars við dóms­mála­ráðu­neytið

Hópur mótmælenda afhenti ráðuneytisstjóra dómsmálaráðuneytisins áskorun um stöðva brottvísun hins sautján ára Oscars Anders Florez Bocanegra. Hópurinn kom saman fyrir utan dómsmálaráðuneytið í Borgatúni í morgun. Greint var frá því nýlega að til stæði að senda Oscar í annað sinn úr landi.

Innlent
Fréttamynd

Flótta­fólki fækkar veru­lega við landa­mæri Evrópu

Flóttafólki hefur fækkað verulega  við landamæri Evópu á árinu. Á fyrsta ársfjórðungi fækkaði óreglulegri för yfir landamæri Evrópu um alls 30 prósent í samanburði við sama tímabil í fyrra. Alls komu 33.600 færri flóttamenn til Evrópu en á sama tíma í fyrra. 

Erlent
Fréttamynd

Sam­þykkti um­deilt bann við hælisumsóknum

Forseti Póllands hefur staðfest umdeild lög sem veita stjórnvöldum tímabundna heimild til þess að svipta fólk sem kemur yfir landamærin frá Belarús réttinum til að sækja um hæli. Mannréttindasamtök mótmæltu frumvarpinu en pólska stjórnin sakar Belarús um að nota fólksflutninga sem vopn í óhefðbundnum hernaði gegn Póllandi.

Erlent
Fréttamynd

Bannaði Trump að nota lög frá á­tjándu öld

Bandarískur alríkisdómari meinaði í gærkvöldi Donald Trump, forseta, að nota lög frá lokum átjándu aldar til að gera auðveldara að flytja farand- og flóttafólk úr landi. Skipaði hann ríkisstjórn Trumps að snúa við flugvélum með fólki sem verið var að flytja úr landi.

Erlent
Fréttamynd

Íhalds­menn taka höndum saman við öf­ga­menn í að­draganda kosninga

Ályktun gegn innflytjendum og flóttafólki sem Kristilegir demókratar fengu samþykkta með stuðningi öfgahægriflokksins Valkosts fyrir Þýskalands er sögð vatnaskil í þýskum stjórnmálum þar sem flokkar hafa fram að þessu útilokað samstarf við harðlínumennina. Líklegt er að flokkarnir verði þeir tveir stærstu eftir kosningar í næsta mánuði.

Erlent
Fréttamynd

Segist ætla að siga hernum á farand- og flótta­fólk

Donald Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna, virtist í dag staðfesta að hann ætlaði sér að lýsa yfir neyðarástandi og nota bandaríska herinn til að vísa farand- og flóttafólki, sem hefur ekki heimild til að vera í Bandaríkjunum, úr landi.

Erlent
Fréttamynd

Sigurði Inga heitt í hamsi þegar hann flutti eld­ræðu um út­lendinga

Líflegar og hvassar umræður sköpuðust um útlendingamál í fyrstu kappræðum formanna stjórnmálaflokkanna fyrir komandi alþingiskosningar á RÚV í kvöld. Sigmundur Davíð spyr hvort við eigum að hjálpa Rússum að tæma Úkraínu. Sigurði Inga var heitt í hamsi þegar hann spurði hvort kosningabaráttan ætti að snúast um svokölluð útlendingamál, og sagði að umræðan ætti að snúast um staðreyndir en ekki vera ofan í drullupotti. Hann segir suma stjórnmálamenn hræddari við lítinn strák í hjólastól en erlenda auðkýfinga sem kaupa upp jarðir.

Innlent
Fréttamynd

Í­búum Úkraínu fækkað um tíu milljónir frá inn­rásinni

Sameinuðu þjóðirnar áætla að íbúum Úkraínu hafi fækkað um fjórðung eða tíu milljónir manna frá því að innrás Rússa í landið hófst af fullum krafti fyrir tveimur árum. Fækkunin er rakin til fólksflótta, hruni í fæðingartíðni og mannfalli í stríðinu.

Erlent
Fréttamynd

Vígahópum vex ás­megin: Stór hluti Sahelsvæðisins í hættu

Óreiða ríkir á stórum hlutum Sahelsvæðisins í Afríku. Átök eru víða og hafa þau komið verulega niður á fólki sem býr þar og er hætta á að óreiðan muni dreifa úr sér á komandi mánuðum og árum með tilheyrandi ódæðum, óstöðugleika og fólksflótta.

Erlent
Fréttamynd

Heita hertum reglum í hælisleitendamálum

Leiðtogar Evrópusambandsins leita nú leiða til að draga úr flæði farand- og flóttafólks til heimsálfunnar. Stuðningur við slíkar aðgerðir hefur aukist töluvert og er sú aukning rakin til aukins fylgis fjar-hægri flokka í Evrópu, sem eru verulega mótfallnir fólksflutningum til Evrópu.

Erlent