Þegar ekki er mögulegt að fara heim Grímur Sigurðarson skrifar 15. maí 2026 15:41 Í umræðu um málefni flóttafólks er stundum talað um og það geti „farið aftur heim“ þegar ástandið í viðkomandi landi róast. Í sumum tilfellum getur fólk farið aftur heim. Það átti til dæmis við um flóttafólk frá Bosníu og Kósovó, sem flúðu stríðsátök í lok síðustu aldar, en gátu svo flest snúið aftur eftir alþjóðasamninga sem tryggðu öryggi þeirra við heimkomu. En í öðrum tilfellum er raunveruleikinn allt annar og upp getur komið sú staða að ekki er mögulegt fyrir viðkomandi að flytja aftur heim. Þessi staða er uppi á meðal þjóðarbrots Drúsa frá Sýrlandi. Drúsar eru lítið trúar- og menningarsamfélag sem hefur lifað í Miðausturlöndum um aldir, meðal annars í Sýrlandi, Líbanon og Ísrael. Drúsar frá Sýrlandi hafa sætt alvarlegum ofsóknum og ofbeldi af hálfu vopnaðra hópa að undanförnu og hafa margar alþjóðastofnanir bent á erfiða stöðu þeirra. Sameinuðu þjóðirnar hafa bent á að 1.700 manns létu lífið í árásum í Suwayda árið 2025 og 200.000 manns voru neyddir til að yfirgefa heimili sín. (UN OHCHR, fréttatilkynning, 27. mars 2026). Það er skýr skylda stjórnvalda að tryggja öryggi þeirra borgara sem snúa aftur. Það hefur ekki verið gert. Evrópusambandið hefur bent á að Drúsar eigi það enn í hættu að vera ofsóttir, snúi þeir til baka (EUAA, Country Guidance: Syria, desember 2025). Staðan er því þannig í dag að Drúsa fjölskyldur geta ekki bara „farið heim“. Mikilvægt er að umræðan um flóttafólk frá Sýrlandi verði raunsærri en verið hefur. Þó margir eru á þeirri skoðun að kerfin okkar séu á þolmörkum verðum við að gera allt sem í okkar valdi stendur til að hjálpa þeim flóttamönnum sem eru hér á landi og geta ekki snúið til baka. Höfundur er hæstaréttarlögmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sýrland Flóttamenn Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Í umræðu um málefni flóttafólks er stundum talað um og það geti „farið aftur heim“ þegar ástandið í viðkomandi landi róast. Í sumum tilfellum getur fólk farið aftur heim. Það átti til dæmis við um flóttafólk frá Bosníu og Kósovó, sem flúðu stríðsátök í lok síðustu aldar, en gátu svo flest snúið aftur eftir alþjóðasamninga sem tryggðu öryggi þeirra við heimkomu. En í öðrum tilfellum er raunveruleikinn allt annar og upp getur komið sú staða að ekki er mögulegt fyrir viðkomandi að flytja aftur heim. Þessi staða er uppi á meðal þjóðarbrots Drúsa frá Sýrlandi. Drúsar eru lítið trúar- og menningarsamfélag sem hefur lifað í Miðausturlöndum um aldir, meðal annars í Sýrlandi, Líbanon og Ísrael. Drúsar frá Sýrlandi hafa sætt alvarlegum ofsóknum og ofbeldi af hálfu vopnaðra hópa að undanförnu og hafa margar alþjóðastofnanir bent á erfiða stöðu þeirra. Sameinuðu þjóðirnar hafa bent á að 1.700 manns létu lífið í árásum í Suwayda árið 2025 og 200.000 manns voru neyddir til að yfirgefa heimili sín. (UN OHCHR, fréttatilkynning, 27. mars 2026). Það er skýr skylda stjórnvalda að tryggja öryggi þeirra borgara sem snúa aftur. Það hefur ekki verið gert. Evrópusambandið hefur bent á að Drúsar eigi það enn í hættu að vera ofsóttir, snúi þeir til baka (EUAA, Country Guidance: Syria, desember 2025). Staðan er því þannig í dag að Drúsa fjölskyldur geta ekki bara „farið heim“. Mikilvægt er að umræðan um flóttafólk frá Sýrlandi verði raunsærri en verið hefur. Þó margir eru á þeirri skoðun að kerfin okkar séu á þolmörkum verðum við að gera allt sem í okkar valdi stendur til að hjálpa þeim flóttamönnum sem eru hér á landi og geta ekki snúið til baka. Höfundur er hæstaréttarlögmaður.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar