Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir og Steinunn Þóra Árnadóttir skrifa 17. október 2026 09:03 Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi gegn fátækt, 17. október. Fátækt er ekki náttúrulögmál. Hún er heldur ekki eingöngu afleiðing ákvarðana einstaklinga eða óheppilegra aðstæðna. Hún mótast meðal annars af því hvernig samfélagið skiptir gæðum sínum, hvaða stuðning það veitir fólki og hvernig opinber kerfi bregðast við breyttum lífsskilyrðum. Í velferðarsamfélagi ætti það að vera grundvallarmarkmið að tryggja öllum raunveruleg tækifæri til þátttöku og afkomuöryggi. Samt búum við við reglur og aðstæður sem geta viðhaldið fátækt og gert fólki erfiðara fyrir að komast úr henni. Þetta er ekki aðeins spurning um fjárhagslegan skort, heldur félagslegt réttlæti, mannréttindi og pólitíska ábyrgð. Fátækt, ójöfnuður og framtíðartækifæri barna Fátækt snýst um meira en skort á peningum. Hún getur takmarkað möguleika fólks til að taka þátt í samfélaginu, viðhalda félagslegum tengslum, sinna heilsu sinni og nýta tækifæri sem öðrum standa til boða. Þegar fjölskyldur þurfa stöðugt að velja á milli brýnustu nauðsynja verður lítið svigrúm eftir fyrir íþróttir, listnám, félagsstarf, skólaferðalög eða annað sem brýtur upp hversdagsleikann, gefur lífinu lit og skapar samheldni. Þetta er ekki óþarfur munaður, heldur mikilvægir þættir í þroska barna og ungmenna og vellíðan fólks á öllum aldri. Það er ekki nóg að allir njóti sömu réttinda á pappír ef hindranir í samfélaginu koma í veg fyrir að allir geti nýtt sér þau. Íslenskar rannsóknir sýna að einstæðir foreldrar, innflytjendur og öryrkjar eru þeir hópar sem líklegastir eru til að búa við fátækt á Íslandi. Fólk sem reiðir sig á fjárhagsaðstoð sveitarfélaga býr einnig við fátækt sem og lágtekjufólk sem þó vinnur fullan vinnudag og jafnvel rúmlega það. Það sem fátækt fólk á Íslandi á sameiginlegt er að það glímir langflest við íþyngjandi húsnæðiskostnað. Öflug tilfærslukerfi á borð við barnabætur og húsnæðisbætur geta skipt sköpum í að létta undir með þeim sem búa við fátækt. Það sama gildir um öflugt opinbert gjaldfrjálst heilbrigðiskerfi. Í skýrslu um fátækt barna og stöðu barnafjölskyldna kemur fram að um 5% barna á Íslandi hafi búið við varanlega fátækt árið 2024. Hlutfallið var um 13% meðal barna einstæðra foreldra og yfir 15% meðal barna af erlendum uppruna. Þessar niðurstöður sýna að fátækt dreifist ekki jafnt. Fátækt í æsku getur haft áhrif langt fram á fullorðinsár, meðal annars með því að takmarka menntunarmöguleika og stuðla að því að ójöfnuður flytjist milli kynslóða. Það ætti aldrei að ráðast af fjárhagsstöðu foreldra hvort barn hafi raunveruleg tækifæri til menntunar, geti þroskað hæfileika sína og tekið fullan þátt í samfélaginu. Menntun er ein mikilvægasta leiðin til að jafna tækifæri og rjúfa vítahring fátæktar. Aðgangur að námi verður þó ekki metinn út frá formlegum rétti einum saman. Húsnæðiskostnaður, framfærsluþörf og fjárhagslegt óöryggi geta ráðið miklu um hvort ungt fólk geti nýtt menntunartækifæri sín. Samfélag sem vill tryggja jöfn tækifæri verður að taka mið af raunverulegum aðstæðum barna og fjölskyldna þeirra. Þegar hindranir leggjast hver ofan á aðra Fátækt verður sérstaklega íþyngjandi þegar félagslegar og efnahagslegar hindranir samtvinnast. Einstætt foreldri sem býr við fötlun eða langvarandi heilsufarslegar áskoranir getur til dæmis haft takmarkaða möguleika á atvinnuþátttöku, þurft að takast á við aukinn kostnað vegna heilsufars og jafnframt borið eitt ábyrgð á framfærslu barna sinna. Í samanburðarrannsókn á aðstæðum kvenna með örorkulífeyri, sem unnin var fyrir Tryggingastofnun (TR), kemur fram að 26% kvenna í rannsóknarhópnum höfðu heimilistekjur undir 401 þúsund krónum á mánuði, samanborið við 6% í samanburðarhópnum. Niðurstöðurnar undirstrika mikilvægi þess að skoða heilsufar, fjölskylduaðstæður og fjárhagsstöðu í samhengi. Langvarandi fjárhagsáhyggjur geta jafnframt haft neikvæð áhrif á líkamlega og andlega heilsu, ekki síst þegar ábyrgð á ólaunaðri umönnun bætist við álag vegna launaðrar vinnu. Fjárhagslegur skortur getur þannig bæði verið afleiðing heilsubrests og gert fólki erfiðara fyrir að viðhalda heilsu sinni og fjárhagslegu sjálfstæði. Þess vegna dugar ekki að skoða einstakar hindranir án þess að horfa á hvernig þær hafa áhrif hver á aðra. Átján ára afmæli markar lagaleg tímamót, en breytir ekki sjálfkrafa framfærsluþörf ungmennis. Mörg ungmenni eru enn í framhaldsskóla og þurfa áfram stuðning foreldra sinna. Kostnaður vegna húsnæðis, matar og skólagöngu hverfur ekki á afmælisdaginn. Samt geta breytingar á opinberum stuðningi við þessi aldursmörk þrengt verulega að fjárhag tekjulágra fjölskyldna og möguleikum þeirra til að styðja ungmenni til náms. Skýrt dæmi er að finna í reglum um heimilisuppbót til lífeyrisþega. Sambýli við uppkomið barn getur haft áhrif á rétt foreldris til heimilisuppbótar, en sérstök undanþága gildir þegar ungmenni á aldrinum 18–25 ára er í námi eða starfsþjálfun. Foreldrar sem framfleyta sér með launatekjum og þurfa ekki að reiða sig á heimilisuppbót verða hins vegar ekki fyrir sambærilegri skerðingu launa þótt uppkomin börn þeirra búi áfram heima. Hvers vegna ætti það að geta skert afkomu fatlaðs eða aldraðs foreldris að veita barni sínu áfram húsaskjól? Hér birtist hvernig reglur geta aukið fjárhagslegt óöryggi í stað þess að draga úr því. Stuðningskerfi sem viðheldur fátækt Velferðarkerfið gegnir lykilhlutverki í baráttunni gegn fátækt, en ekki þjóna allar reglur þess því markmiði jafn vel. Í skýrslunni um fátækt barna er bent á að tekjutengdar bætur og afsláttarkerfi geti skerst þegar tekjur foreldra hækka. Fjárhagslegur ávinningur af auknum tekjum getur því orðið mun minni en ætla mætti og jafnvel orðið til þess að ráðstöfunartekjur lækki. Hvernig getur samfélagið ætlast til þess að fólk bæti fjárhagsstöðu sína ef samspil opinberra kerfa heldur fólki í fátæktargildru? Fátækt hefur ekki aðeins alvarlegar afleiðingar fyrir einstaklingana sem við hana búa, heldur einnig fyrir samfélagið. Í íslenskum rannsóknum hefur árlegur samfélagslegur kostnaður fátæktar verið metinn á bilinu 35 til 103 milljarðar króna. Um er að ræða áætlaðan kostnað vegna meðal annars tapaðra tekna og framleiðslu, aukins heilbrigðiskostnaðar og annarra afleiðinga, ekki bein útgjöld ríkissjóðs. Að draga úr fátækt er því bæði spurning um félagslegt réttlæti og fjárfestingu í heilsu, menntun og framtíðartækifærum komandi kynslóða. Baráttan gegn fátækt krefst meira en tímabundinna úrræða og góðs vilja. Stjórnvöld verða að skoða heildstætt hvernig ákvarðanir þeirra hafa áhrif á afkomu fólks. Laun, sem og opinber framfærsla, þurfa að duga til mannsæmandi lífs. Tekjutengingar og skerðingar mega ekki vinna gegn markmiðum velferðarkerfisins og stuðningur við börn og ungmenni verður að taka mið af raunverulegum þörfum þeirra. Jafnframt þarf að tryggja að fjárhagsstaða, heilsufar eða fjölskylduaðstæður útiloki fólk ekki frá því að sækja sér heilbrigðisþjónustu, menntun og einfaldlega að taka þátt í samfélaginu. Fátækt er ekki einkamál þeirra sem við hana búa, heldur samfélagslegt ábyrgðarmál. Það er pólitísk ákvörðun að viðhalda reglum sem skapa ójöfn tækifæri. Það er líka pólitísk ákvörðun að breyta þeim. Höfundar eru formaður kjarahóps ÖBÍ og formaður EAPN á Íslandi, samtaka gegn fátækt. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kjaramál Skóla- og menntamál Mest lesið Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Skoðun Hver á að fá tímann sem gervigreindin sparar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Hver á að ákveða hvaða áhættu við megum taka? Steinar Thors skrifar Skoðun Margt getur gerst á 18 mánuðum Ragna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Það er líka dýrt að bíða Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun Mennskan í umróti felst í vönduðum vinnubrögðum Berglind Björk Hreinsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Stækkum og styrkjum sérsveitina Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé skrifar Skoðun Í Singapúr dugði eitt orð Margrét Reynisdóttir skrifar Skoðun Drónar: vinur eða óvinur? Sunna Gunnars Marteinsdóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Skoðun Ríkisstjórnin þarf að leggjast alfarið gegn olíuleit á Drekasvæðinu Rósa Björk Brynjólfsdóttir skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun