Laufey Lín sló í gegn á Coachella Stórstjarnan Laufey Lín tróð í gær upp á einni vinsælustu tónlistarhátíð í heimi, Coachella sem haldin er í eyðimörk við borgina Palm Desert í Coachella Valley í Kaliforníu. Tónlist 13.4.2026 09:42
Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Tónlistarmaðurinn og Íslandsvinurinn Justin Bieber sneri aftur á stóra sviðið í gærkvöldi. Hann steig þá á stokk á bandarísku tónlistarhátíðinni Coachella sem eitt af aðalnúmerum hennar. Hinn 32 ára gamli söngvari varði stórum hluta tónleikanna sitjandi fyrir framan fartölvu og syngjandi með YouTube-tónlistarmyndböndum við eldri slagara sína, eins og „Baby“ og „Never Say Never“. Lífið 12.4.2026 14:39
Myndaveisla: Skagarokk haldið í fyrsta skipti síðan 1994 Black Sabbath rokkmessa hófst á Akranesi í gær, föstudaginn 10. apríl, þar sem Jenni í Brainpolice, Franz úr Ensími og Dr. Spock, Hallur úr HAM og Brimbrot og Flosi úr HAM stigu á svið. Þá stigu einnig á stokk sveitirnar Bastarður og Múr. Í kvöld verður dagskráin með léttara móti en þá koma fram Hjálmar, Spacestation og Oyama. Tónlist 11.4.2026 13:30
Svala minnist pabba síns Svala Björgvins, dóttir Björgvins Halldórssonar, minnist föður síns í fallegri færslu sem hún birti á Facebook í dag. Björgvin var bráðkvaddur að heimili sínu nú í morgun, 9. apríl, en hann var 74 ára gamall. Lífið 9. apríl 2026 15:30
Stebbi Jak hættur í Dimmu: „Fólk sem ég taldi vera vini mína hefur brugðist á öllum stigum málsins“ Tónlistarmaðurinn Stefán Jakobsson er hættur í hljómsveitinni Dimmu vegna ósættis við bassaleikarann Silla Geirdal og eiginkonu hans. Stefán segir þau hafa tekið afstöðu gegn honum í dómsmáli þar sem hann var ákærður fyrir líkamsárás en Stefán var sýknaður í málinu í Héraðsdómi Reykjaness í gær. Stefán segir ákærandann hafa áreitt sig og fjölskyldu sína linnulaust síðustu tvö og hálft ár. Tónlist 9. apríl 2026 13:52
Björgvin Halldórsson látinn Björgvin Halldórsson söngvari er látinn. Hann fæddist 16. apríl 1951 og var því hartnær 75 ára gamall þegar hann andaðist. Hann varð bráðkvaddur að heimili sínu nú í morgun, 9. apríl. Innlent 9. apríl 2026 12:43
Sex þúsund miðar seldust upp á innan við mínútu Forsala á stórtónleika Kaleo á Þingvöllum í sumar hófst klukkan tíu í morgun og seldust miðarnir sex þúsund upp á innan við mínútu. Tónleikarnir fara fram 20. júní og mun fjöldi íslenskra tónlistarmanna koma þar fram. Tónlist 9. apríl 2026 12:12
Barnsleg gleði, kynþokki og óhugnaður Hljómsveitin ex.girls gaf í dag út fyrstu smáskífuna af nýrri plötu sinni, City of Fear, en laginu fylgir óhefðbundið myndefni. Platan var tekin upp á tíu dögum í Rotterdam árið 2023 og hefur mallað hjá sveitinni síðan. Söngkona sveitarinnar lýsir plötunni sem sexý og óhugnarlegri og hún sé samin af barnslegri gleði. Tónlist 9. apríl 2026 11:46
The Streets koma fram á Iceland Airwaves Búið er að tilkynna 28 listamenn sem koma fram á tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves í nóvember en fleiri eiga eftir að bætast við. Stærstu nöfnin sem eru nefnd þar eru breska sveitin The Streets, breska söngkonan Shygirl, íslenska stórstjarnan Daði Freyr og hið filipseysk-íslenska Yaolekre. Lífið 8. apríl 2026 13:44
Björk treður upp í Hafnarfirði í sumar Stórstjarnan Björk var rétt í þessu að tilkynna Sólmyrkvahátíð á Víðistaðatúni í Hafnarfirði 12. ágúst næstkomandi þar sem hún þeytir skífum ásamt öflugum hópi tónlistarfólks. Tónlist 8. apríl 2026 13:02
Furðubandið sem tryllti netið Það hefur verið erfitt að komast hjá Angine de Poitrine á netinu undanfarið. Myndband af sveitinni í KEXP-upptöku hefur gengið manna á milli, áhorfið hlaupið á milljónum og sveitin orðin að einhvers konar fyrirbæri. Lífið 7. apríl 2026 14:16
Offset skotinn við spilavíti í Flórída Rapparinn Offset varð fyrir byssuskoti við spilavíti í Flórída í gær. Virðist hann ekki vera í lífshættu og líðan hans er stöðug á spítala. Lífið 7. apríl 2026 09:38
Ye á Wireless: Styrktaraðilar hætta við og forsætisráðherrann blandar sér í málið Forsvarsmenn tónlistarhátíðarinnar Wireless hafa hlotið töluverða gagnrýni eftir að greint var frá því að bandaríski rapparinn Kanye West myndi stíga á svið öll þrjú kvöld hátíðarinnar. Styrktaraðilar hafa sagt sig frá hátíðinni og hefur forsætisráðherra Bretlands tjáð sig um málið. Lífið 7. apríl 2026 08:51
Skagarokk: Boða til Black Sabbath messu og tónlistarveislu næstu helgi „Það verður að gera skemmtilegt. Það er í raun það sem þetta snýst um; að gera skemmtilegt,“ segir útvarpsmaðurinn og tónlistargúrúið Ólafur Páll Gunnarsson um sannkallaða rokkveislu sem slegið verður upp á Akranesi næstu helgi. Lífið 6. apríl 2026 13:13
Allir komust lifandi út – nema Beethoven Þegar tónskáldin Alexander Skrjabín og Níkolaj Rimskí-Korsakov sátu eitt sinn að snæðingi upphófst mikið rifrildi. Ástæðan? Liturinn á E-dúr. Báðir voru þeir gæddir svokallaðri samskynjun (e. synesthesia) og voru fyllilega sammála um að tóntegundin væri blá – spurningin var bara hvort hún væri djúpblá eins og safír eða fölblátt mánaskin. Við borðið sat einnig kollegi þeirra, Sergej Rakhmanínoff, grjótharður raunsæismaður sem fussaði hneykslaður yfir slíku andlegu bulli. Fyrir honum voru nótur einfaldlega nótur og ekkert annað. Hefði Víkingur Heiðar mætt í þetta sögulega matarboð hefði kvöldið vafalítið endað í slagsmálum. Hann er nefnilega líka með samskynjun, en ólíkt rússnesku meisturunum er E-dúr fyrir honum grænn. Gagnrýni 6. apríl 2026 07:02
„Þetta gekk eins og í lygasögu“ Kristján Freyr Halldórsson, rokkstjóri Aldrei fór ég suður, segir hátíðin hafa gengið glimrandi vel í gær. Veðrið hafi leikið við gesti hátíðarinnar og von sé á stórskemmtun í kvöld þegar Joey Christ, Alaska1867 og Skítamórall stíga á svið. Lífið 4. apríl 2026 12:15
„Ég hélt að ég væri hreinlega að deyja“ Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, segir að hann hafi leitað til sálfræðings um aldamótin eftir að hafa glímt við taugaveiklun og oföndun undir álagi. Hann hafi í fyrstu haldið að hann væri að verða geðveikur. Þetta kemur fram í fyrsta þætti af nýju hlaðvarpi í umsjón Björn Skúlasonar, forsetamaka. Lífið 4. apríl 2026 11:01
Jökull og Telma hvort í sína áttina Jökull Júlíusson söngvari Kaleo og Telma Fanney Magnúsdóttir sálfræðingur hafa slitið sambandi sínu. Þau byrjuðu saman fyrir tæpum tíu árum og trúlofuðust árið 2022. Lífið 3. apríl 2026 10:27
Íslandsvinurinn Gucci Mane frelsissviptur Níu Bandaríkjamenn hafa verið ákærðir fyrir mannrán og vopnað rán eftir að hafa lokkað nokkra tónlistarmenn inn í upptökuver í Dallas, frelsissvipt þá og rænt af þeim fjármunum og lausafé fyrr á þessu ári. Meðal fórnarlamba er rapparinn og Íslandsvinurinn Gucci Mane. Lífið 2. apríl 2026 20:58
Birnir á lag ársins Lagið LXS með Birni er lag ársins samkvæmt Hlustendaverðlaunum Bylgjunnar og FM957 en þau fara fram með óhefðbundum hætti þetta árið. Í ár er það starfsfólk Bylgjunnar og FM957 sem koma sigurvegurum á óvart með heimsóknum og stuttum þáttum í kringum þær. Lífið 2. apríl 2026 18:22
Páskar: Ef þú mættir velja einhvern til að krossfesta Á páskum fagna því væntanlega ýmsir að Guð hafi gefið son sinn eingetinn, svo að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf. Þeir eru þó sennilega fleiri sem fagna því að fá frí í vinnunni, þar sem lífið virðist oft sannarlega eilíft. Lífið 2. apríl 2026 07:02
Hlustendaverðlaunin: Kaleo er flytjandi ársins Hlustendur FM957 og Bylgjunnar hafa talað, flytjandi ársins er hljómsveitin Kaleo og Vor í Vaglaskógi. Lífið 1. apríl 2026 13:29
Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Sir Bryn Terfel, sem er álitinn besti bass-baritón heims, kemur til Reykjavíkur þann 10. oktober nk og heldur magnaða tónleika í Hörpu. Þar mun hann sýna hæfileika sína sem söngvari og gefa íslenskum áhorfendum tækifæri á að njóta frábærra sönghæfileika auk heillandi sviðsframkomu hans. Lífið samstarf 1. apríl 2026 12:04
Bubbi með opna hljómsveitaræfingu í Höllinni „Allir velkomnir, þetta verður þriggja tíma opin hljómsveitaræfing og haltu kjafti,“ segir Bubbi Morthens tónlistarmaður. Það hvín í honum – hann er hress. Bubbi verður með opna hljómsveitaræfingu í Laugardalshöll í dag klukkan 11. Lífið 1. apríl 2026 09:01