Lífið

Chris Brown á skil­orði

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Árásin átti sér stað á einkaklúbbnum Tape Venue í London þann 19. febrúar 2023.
Árásin átti sér stað á einkaklúbbnum Tape Venue í London þann 19. febrúar 2023.

Bandaríski söngvarinn Chris Brown hefur verið dæmdur til átta mánaða skilorðsbundins fangelsisdóms fyrir að slá mann með tekílaflösku í höfuðið á næturklúbbi í London árið 2023.

BBC greinir frá. Hinn meðákærði, raddþjálfi Browns og rapparinn Omololu Akinlolu eða HoodyBaby, var dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundinn dóm.

Báðir játuðu þeir ofbeldisfulla háttsemi í júlí en neituðu öðrum brotum sem þeim var gefið að sök. Var Brown meðal annars ákærður fyrir líkamsárás, tilraun til stórfelldrar líkamsárásar og vörslu árásarvopns en voru þær ákærur felldar niður.

Við uppkvaðningu dómsins voru sýndar myndbandsupptökur úr næturklúbbnum þar sem sést til Browns slá brotaþolann, framleiðandann Abraham „Abe“ Diaw, fjórum sinnum með tekílaflösku úr gleri, þar á meðal tvisvar í höfuðið og síðan í öxlina.

„Augljóslega hættuleg“

„Endurtekin notkun glerflösku með þessum hætti, einkum þegar henni er beint að höfðinu, var augljóslega hættuleg og hafði í för með sér hættu á alvarlegri áverkum en raun bar vitni,“ sagði dómarinn í málinu, Tony Baumgartner. Diaw var sendur á sjúkrahús í London með áverka á höfði og hné.

Hópur aðdáenda beið Chris Brown fyrir utan dómshúsið í London.Vísir/AP

Baumgartner sagði að frægð Brown myndi ekki veita honum neina sérmeðferð í málinu, „lögin gilda jafnt um alla.“ Árásin átti sér stað á einkaklúbbnum Tape Venue þann 19. febrúar 2023 og sat Brown um tíma í gæsluvarðhaldi í London eftir málið.

Hópur aðdáenda beið eftir Brown fyrir utan dómshúsið og staldraði hann við til að gefa eiginhandaráritanir, segir í frétt BBC um málið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.