Tónlist

Fyrsta mynd­bandi Tár leik­stýrt af Bald­vin Z

Lovísa Arnardóttir skrifar
Elín og Zöe segja karakterana byggða á einhverju sem býr innra með þeim.
Elín og Zöe segja karakterana byggða á einhverju sem býr innra með þeim. Aðsend

Í dag gefur dúettinn Tár út fyrsta tónlistarmyndband sitt við lagið „Isn’t Life a Bitch“. Myndbandinu er leikstýrt af Baldvin Z en Adam Thor Murtomaa sá um tökur og klippingu.

Elín Eyþórsdóttir og Zöe Ruth Erwin skipa hljómsveitina. Þær hafa báðar skapað tónlist hvor í sínu lagi og í öðrum hljómsveitum um árabil en hafa fundið nýjan takt og nýjan tilgang í nýrri hljómsveit. Í viðtali við Vísi fyrr á árinu sögðust þær búa til tónlist sem er heiðarleg.

Í tilkynningu segir að myndbandið sé ferðalag inn í virkilega súrrealískan veruleika. Karakterar myndbandsins séu hver öðrum undarlegri, en meðal þeirra sem koma fram í vídeóinu eru leikkonan Íris Tanja Flygenring og dansarinn Luis Lucas.

Klippa: Tár - „Isn’t Life a Bitch“

„Karakterarnir eru ef til vill birtingarmynd einhvers sem býr innra með okkur öllum, sérstaklega þegar lífið bara virðist ekki ætla að ganga upp,“ segir Elín í tilkynningunni.

Zöe tekur undir og segir: „Það fjallar um baráttuna við að gera allt sem í þínu valdi stendur til að láta hlutina ganga upp, en klúðra öllu aftur og aftur.“

Breiðskífa væntanleg

Breiðskífa er væntanleg frá hljómsveitinni en auk þess munu þær taka upp EP-plötu í janúar 2027 með óútgefnu efni í hinu Real World Studios, hljóðveri Peters Gabriel, með Grammy-verðlaunahafanum Katie May sem upptökustjóra og hljóðmanni.

Hljómsveitin kemur fram í Fríkirkjunni í Reykjavík á Iceland Airwaves í ár, 5. nóvember kl. 21:50. Fyrir tónleikana hafa Elín og Zoe sett saman sex manna hljómsveit.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.