Lífið

RJ Mitte er látinn

Freyja Þórisdóttir skrifar
RJ Mitte sagðist hafa verið ótrúlega þakklátur fyrir fólkið sem hann kynntist við tökur á þáttunum Breaking Bad og hann hafi verið í miklu sambandi við það frá því að þættirnir runnu sitt skeið.
RJ Mitte sagðist hafa verið ótrúlega þakklátur fyrir fólkið sem hann kynntist við tökur á þáttunum Breaking Bad og hann hafi verið í miklu sambandi við það frá því að þættirnir runnu sitt skeið. Getty

Bandaríski leikarinn RJ Mitte, sem er þekktastur fyrir leik sinn í þáttunum „Breaking Bad“, er látinn en hann var aðeins 34 ára þegar hann lést. Hann lætur eftir sig unnustu en biðlað hefur verið til fólks að gefa ástvinum hans næði til að syrgja í friði.

Kemur þetta meðal annars fram í umfjöllun TMZ um andlátið en RJ lést í heimabæ sínum, Brownsville, í Texas-fylki í Bandaríkjunum. Þá standi rannsókn á andlátinu enn yfir en ekki liggi fyrir hvernig það bar að garði. Þó hafa TMZ og margir staðarmiðlar haft eftir heimildum að RJ hafi fallið fyrir eigin hendi. 


Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.1799.


„Það er með djúpri sorg sem við greinum frá sviplegu andláti hins ástsæla leikara, mannvinar og ötula baráttumanns fyrir réttindum fatlaðs fólks, RJ Mitte,“ sagði talsmaður hans í samtali við TMZ. Hann óskaði eftir því að fólk gæfi ástvinum RJ andrými til að ná áttum.

Aðalleikarar þáttanna, þau Aaron Paul, Bryan Cranston, Anna Gunn og RJ Mitte, mættu saman á hátíð í tilefni af tíu ára afmæli Breaking Bad í San Diego Convention Center þann 19. júlí 2018.

RJ lék í alls 56 þáttum af „Breaking Bad“ þar sem hann fór með hlutverk Walter ‚Flynn‘ White, sonar aðalpersónunnar sem leikin var af Bryan Cranston. Í þáttunum var karakterinn hans með heilalömun (á ensku cerebral palsy) en leikarinn deildi því með karakternum og var alla tíð mikill baráttumaður fyrir réttindum fatlaðs fólks.

Hann var forseti The Mitte Foundation sem vann að því að auka tækifæri fatlaðra leikara. Síðast þegar fréttamenn TMZ náðu tali af leikaranum, árið 2019, hafði hann rætt við þau um að fatlaðir leikarar þyrftu meiri sýnileika í Hollywood.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.