Bíó og sjónvarp

Skaut sig ó­vart í fótinn

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Michael Mann með leikurunum Adam Driver og Patrick Dempsey á frumsýningu kvikmyndarinnar Ferrari í Feneyjum fyrir þremur árum.
Michael Mann með leikurunum Adam Driver og Patrick Dempsey á frumsýningu kvikmyndarinnar Ferrari í Feneyjum fyrir þremur árum. EPA

Hollywood-leikstjórinn Michael Mann lenti í því óhappi að skjóta sig í fótinn á skotsvæði í Los Angeles á laugardag. Leikstjórinn var fluttur á sjúkrahús þar sem hlúð var að sárum hans sem reyndust vera minniháttar.

Götumiðillinn TMZ greindi frá tíðindunum af hinum 83 ára Mann.

Samkvæmt heimildum fjölmiðilsins þá var leikstjórinn, sem hefur áratugareynslu af skotvopnum og var staddur á skotsvæði í Los Angeles í  Kaliforníu, að reyna að setja skammbyssu í hulstur þegar hann skaut sig óvart í fótinn síðdegis á laugardag.

Hann var síðan fluttur með sjúkrabíl á spítala í nágrenninu en þar kom í ljós að áverkarnir voru smávægilegir og að byssukúlan hafði ekki farið djúpt. Bæði lögreglan og slökkviliðið í Los Angeles voru kölluð á vettvang.

Michael Mann er einn öflugasti spennumyndaleikstjóri Hollywood og hefur gert sígildar kvikmyndir á borð við The Last of the Mohicans (1992), Heat (1995), Collateral (2004) og Miami Vice (2006). 

Mann er enn virkur á níræðisaldri og gerði síðast ævisögulegu myndina Ferrari (2023) með Adam Driver í aðalhlutverki. Hann vinnur nú að kvikmyndinni Heat 2 sem gerist á undan fyrri myndinni, verður með Leonardo DiCaprio, Stephen Graham og Christian Bale í aðalhlutverkum og hefjast tökur á henni í byrjun næsta árs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.