Glee snýr aftur Magnús Jochum Pálsson skrifar 21. október 2026 15:54 Nokkrir af helstu leikurum Glee úr upprunalegu seríunni. Fox Tónlistardramaþættirnir Glee snúa aftur á skjáinn og verða endurræstir með nýrri seríu á streymisveitunum Disney+ og Hulu. Litlar upplýsingar liggja fyrir um seríuna sem mun þó innihalda bæði ný andlit og einhverja leikara úr upprunalegu seríunni.
Streymisveiturnar Disney+ og Hulu greina frá endurræsingunni (e. reboot) í tilkynningu. Tónlistardramaþættirnir Glee eru hugarsmíði hins afkastamikla Ryan Murphy, gengu í sex þáttaraðir á Fox frá 2009 til 2015, nutu gríðarlegra vinsælda og voru sýndir hérlendis á Stöð 2. Þættirnir fjölluðu um skólakór í Lima í Ohio og glímu meðlima hans við menntaskólaárin og allt sem þeim fylgir. Óhætt er að segja að þættirnir hafi verið risastórt menningarfyrirbæri á sínum þökk sé óvenjulegri nálgun og óheflaðri umfjöllun um málefni á borð við kynlíf ungmenna, geðheilbrigðismál og fordóma. Sömuleiðis náðu ýmsar ábreiður úr þáttunum mikilli útbreiðslu, einna helst ábreiða kórsins á smellinum „Don't Stop Believing“ eftir Journey. Litlar upplýsingar um endurræsinguna fylgja tilkynninguna, raunar kemur einungis fram að serían verði framleidd af 20th Television og sýnd á Hulu og Disney+. Leikaraval liggur þannig ekki fyrir en ljóst er að einhverjar stjörnur úr upprunalegu þáttunum munu snúa aftur. „Ég hef verið í bandi við um tíu leikara úr upphaflegu seríunni,“ sagði höfundurinn Murphy í nýlegu viðtali við Entertainment Tonight þar sem hann staðfesti að hann hefði skrifað handrit að nýju þáttunum með samstarfsmönnum sínum Brad Falchuk og Ian Brennan. Upphaflegi leikhópurinn samanstóð af leikurunum Leu Michelle, Cory Monteith, Matthew Morrison, Jane Lynch, Diönnu Agron, Chris Colfer, Darren Criss, Amber Riley, Nayu Rivera, Heather Morris, Kevin McHale, Jennu Ushkowitz, Harry Shum Jr., Chord Overstreet og Mark Salling og ýmsum fleirum. Þá hefur stjarna upphaflegu þáttanna, Lea Michele, lýst því yfir að hún myndi glöð snúa aftur í endurræsingu á seríunni. Ekki munu þó allir snúa aftur því ýmis áföll hafa dunið á leikhópnum á síðustu þrettán árum. Leikarinn Cory Monteith lést úr ofskömmtun árið 2013 meðan þættirnir voru enn í sýningu, Mark Salling stytti sér aldur árið 2018 eftir að hafa gengist við vörslu á barnaníðsefni og svo drukknaði Naya Rivera í stöðuvatni árið 2020.
Bíó og sjónvarp Disney Bandaríkin Mest lesið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tímamót hjá Árna Má Menning Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Fleiri fréttir Glee snýr aftur Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Stelpurnar snúa aftur Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Sjá meira