Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Símon Birgisson skrifar 21. október 2026 07:01 Gói og Unnur Ösp fara með hlutverk hjónanna David og Joan og standa sig fantavel að mati gagnrýnanda. Það var óneitanlega sérstakt andrúmsloft í Þjóðleikhúsinu á föstudaginn þegar leikritið Högg var frumsýnt. Verkið byggir á sannri sögu Jacob Dunne sem varð manni að bana með einu hnefhöggi árið 2011. Í salnum var bæði Jacob, gerandinn í sögunni og faðir fórnarlambsins, David Hodginson og getur maður ekki annað en dáðst að kærleika þeirra, krafti og þori í að segja þessa erfiðu sögu. Margt er vel gert í Höggi en einnig ýmsir gallar á sýningunni sem fjallar um stór málefni en nýtir illa möguleika stóra sviðsins.
Högg – Þjóðleikhúsið. Frumsýning 16. október 2026 Höfundur: James Graham byggt á bók Jacob Dunne. Leikstjóri: Magnús Geir Þórðarson. Leikmynd: Ilmur Stefánsdóttir. Búningar: Filippía I. Elísdóttir Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmundsson: Jakob van Oosterhout, Unnur Ösp Stefánsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson o.fl. Blákaldur veruleikinn Áhorfendur eru meðvitaðir um söguþráð verksins áður en sýningin hefst. Minningarskjöldur um James Hodgkinson (fórnarlamb Jacobs) tekur á móti manni í anddyrri Þjóðleikhússins og ég verð að gefa leikhúsinu hrós fyrir umgjörð sýningarinnar – hún er til fyrirmyndar. Fyrri hluti sýningarinnar lýsir bæði æsku Jacobs Dunne og aðdraganda þess að hann verður James að bana. Hann elst upp hjá einstæðri móður í verkamannahverfi í Nottingham og kemur fljótt í ljós að hann passar illa inn í þröngan ramma skólakerfisins. Greining um ADHD og einhverfuróf fylgir bæði ávísun frá félagsþjónustunni en færir einnig móður hans afsökun fyrir þeim árekstrum sem Jacob á við umhverfi sitt. Leikritið Högg fjallar um hinn nítján ára Jacob sem fer að skemmta sér og kýlir í ölæði mann til bana.Þjóðleikhúsið/Jorri Líf Jacobs tekur svo breytingu til hins verra þegar hann kynnist vímuefnum og áfengi. Hann kemst í kast við lögin og allt snýst um að vinna sig upp í áliti hjá gengjum hverfisins. Kvöldinu örlagaríka, sem verkið hverfist um, er gert góð skil fyrir hlé. Jacob hefur oft lent í slagsmálum og þurft að verja hendur sínar en er samt ekki týpan sem er sérstaklega að leita uppi ofbeldi. Hann vill til dæmis ekki bera hníf eins og aðrir í genginu. Öll hans plön, draumar og áform breytast þegar hann kemur að vinahóp sínum í rifrildi við ungan mann á torginu. Hann sveiflar hnefanum og þetta eina högg er nóg. Jacob er morðingi. Hefur líka gerst á Íslandi Þrátt fyrir að verkið gerist á Bretlandi er sagan okkur á Íslandi ekki óviðkomandi. Það hafa komið upp sambærileg mál hér á landi. Ég man eftir tveimur atvikum frá því ég var í blaðamennsku á árunum 2004 – 2005. Scott McKenna drap Danann Flemming Tolstrup. Í öðru þeirra varð skoskur knattspyrnumaður sem spilaði hér á landi dönskum hermanni að bana á krá í Keflavík með einu höggi. Hitt málið kom upp á veitingastað í Mosfellsbæ þar sem ungur Íslendingur varð fjölskylduföður að bana með hnefahöggi. Hugur manns leitar einnig til sorglegra atvika í umferðinni þar sem annaðhvort ölvun eða glannaskapur hefur leitt til dauða fólks í blóma lífsins. Oftar en ekki eru þeir sem bera ábyrgðina í þessum málum ungir karlmenn – markmið þeirra er ekki að drepa eða valda skaða en afleiðingar eru gríðarlegar og fjölskyldur skildar eftir í sárum. Loftur Jens Magnússon varð Ragnari Björnssyni að bana. Mér finnst einna áhugaverðast við Högg í Þjóðleikhúsinu að hér er kastljósinu beint að ungum karlmönnum. Þetta er sá hópur sem er einna fyrirferðarmestur í meðferðarkerfinu, fjölmennastur í fangelsiskerfinu og í hvað verstri stöðu í skólakerfinu. Það hefur líka verið í fréttum að ungir karlmenn eru sífellt stærri hluti þeirra sem þarf á úrræðum eins og Virk að halda og félagslegum bótum. En það er sjaldgæfara að þessum hópi sé gefin rödd eða kastljósinu beint að þeirra vandamálum og líðan og því er samfélagslegt mikilvægi verksins mikið. Næstum því einleikur Í Höggi er það Jacob (Jakob van Oosterhout) sem segir okkur söguna. Fyrir hlé er sýningin hálfgerður einleikur þar sem hann er í forgrunni en svo birtast okkur aðrar persónur eins og skissur í stuttum senum. Ég hef aldrei verið neitt sérstaklega hrifinn af því þegar það er sögumaður í leikritum; finnst það frekar gamaldags frásagnaraðferð og stundum svolítið auðveld undankomuleið. Það er erfiðara að láta sögur gerast í gegnum samtöl og sviðsetningu; frekar í barnasýningum eða ævintýrum sem maður sættir sig við sögumann á sviðinu. Eftir hlé breytist stíll verksins, áherslan verður á eftirleikinn. Persónum fækkar og þá fannst mér leikritið verða betra. Jakob hefur sýnt að hann getur valdið stórum hlutverkum (til dæmis í Ormstungu) og hann stendur sig vel í þessari uppsetningu – dettur ekki í klisjur, heldur uppi réttu orkustigi og leyfir okkur áhorfendum að kynnast aðalpersónunni og mynda okkur á henni skoðun. Stíllinn á verkinu er ekki auðveldur fyrir leikarana. Það er lítill aðdragandi að dramatískum senum – eitt augnablik erum við stödd á torginu og í næstu andrá á spítalanum þar sem foreldrar James þurfa að horfast í augu við raunveruleikann. Í verki sem er svona brotakennt voru sumar senur betri en aðrar. Mér fannst Kristinn Óli Haraldsson gera vel í hlutverk Raf sem fer gegn óskráðum lögmálum hverfisins og kjaftar í lögguna, Sigurbjartur Sturla Atlason fékk ekki mikinn tíma til að gera samkynhneigðum bróður Jacobs skil og sú sena virkaði fremur klaufaleg, Þuríður Blær Jóhannsdóttir leikur ýmis hlutverk, t.d. gamla konu en með svona marga leikara í sýningu hlýtur að vera hægt að finna leikkonu á réttum aldri í hlutverk eldri konu í Þjóðleikhúsinu í staðinn fyrir að setja Þuríði í hallærislegt gervi og láta hana ganga við staf. Gói og Unnur með stórleik Af leikhópnum fannst mér Guðjón Davíð Karlsson (Gói) og Unnur Ösp Stefánsdóttur í hlutverki foreldranna James og Joan standa upp úr. Það vita allir að Gói getur neglt grínið og glensið en hér sýnir hann alvöru leik í dramatísku hlutverki. Augnablikið þegar hann er að gera upp við sig hvort hann vilji taka í hönd brotamannsins, höndina sem varð syni hans að bana, var virkilega sterkt. Og þegar hann reynir að þurrka bleytu af gólfinu á sáttafundinum fékk ég sting í hjartað. Samleikur Guðjóns og Unnar var til fyrirmyndar og þeirra senur þær sterkustu í verkinu. Unnur bjó til trúverðuga mynd af konu sem þarf að takast á við mikla sorg en hlustar einnig á hjartað og neitar að láta reiðina og hefndina sigra. Í raun er það Joan og hugrekki hennar í að rétta út höndina til Jacobs ástæða þess að þetta leikrit er yfir höfuð til. Af hverju stóra sviðið? Högg er svolítið erfið sýning að gagnrýna. Mér finnst efni hennar brýnt og Þjóðleikhúið er svo sannarlega að bjóða upp á spennandi samtal við áhorfendur og þá sér í lagi ungt fólk. En ef ég horfi einungis á uppsetninguna sjálfa þá fannst mér ekki allt jafn vel heppnað. Leikritið verður ansi langdregið á köflum. Þrátt fyrir sterkari leiksenur eftir hlé kemur smá predikunartónn í sýningunni sem ég get alveg trúað að fari í taugarnar á sumum. Sena þar sem Jacob og Joan mæta í sjónvarpsviðtal var mögulega ofaukið og það hefði alveg mátt stytta verkið án þess að það kæmi niður á innihaldinu. Sviðsmynd Ilmar Stefánsdóttur heillaði mig ekki. Mér fannst eins og hægt hefði verið að nýta möguleika stóra sviðsins mun betur; til dæmis býður hringsviðið upp á spennandi lausnir í leikriti sem gengur út á hraðar senuskiptingur þar sem flakkað er um í tíma og rúmi. Þegar maður skoðar myndir af uppsetningu verksins í Bretlandi og Bandaríkjunum sér maður að sviðsmyndin er í grundvallaratriðum eins og í uppsetningunum úti svo kannski hafa hendur Ilmar verið bundnar af einhverju leiti. Jakob van Oosterhout fer með hlutverk Jacobs og Edda Margrét með hlutverk móður hans.Þjóðleikhúsið/Jorri Það sem truflaði mig við leikstjórn Magnúsar Geirs Þórðarsonar var einhver skortur á hörku og ljótleika. Verkið á að gerast í fátæktarhverfi í Nottingham en mér stundum eins og ég væri staddur á söngleik í menntaskóla. Slow-motion dansar í strobe ljósum eru frekar gamaldags stílbragð og hópsenurnar urðu stundum líkastar söngleikjanúmerum. Það bætti ekki úr skák að lýsing Björns Bergsteins Guðmundssonar hefði hentað betur á aldamótatónleikum í Hörpu en á stóra sviði Þjóðleikhússins. Mig vantaði líka sterkari hugrenningartengsl við Bretland og breska menningu. Búningar Filippíu Elísdóttur voru svolítið sviplausir og kannski hefði þurft að ýkja sumt fyrir íslenska áhorfendur. Þetta átti í raun við verkið í heild – mér fannst erfitt að staðsetja mig, það var einna helst að það næðist í gegnum leiktextann en í einni senu ræða persónurnar um Ólympíuleikana í London. Svo var það þýðing Kristjáns Þórðar Hrafnssonar sem var eiginlega of góð. Eflaust er aldrei hægt að yfirfæra talsmáta Breta yfir á Ísland. Þar hefur hver stétt sitt tungutak og slangur á meðan íslenskan er einsleitari. En texti Kristjáns var ansi bókmenntalegur og mér varð hugsað til sýningarinnar Ífígeníu í Ásbrú sem var að mínu mati mun breskari þrátt fyrir að vera staðfærð til Íslands. Í henni keypti maður strax týpuna, stéttarstöðu hennar og menntunarleysi - í gegnum talsmátann og búninginn. Hver er ábyrgur? Ábyrgð er flókið hugtak og oft eiga börn erfitt að skilja að sami einstaklingur getur bæði borið ábyrgð og verið fórnarlamb á sama tíma. Í Höggi eru ýmsir dregnir fram til ábyrgðar – skólinn sem veit ekki hvað það á gera við Jacob, félagslega kerfið sem þvær hendur sínar með bótagreiðslum og dómskerfi sem sendir Jacob til enn harðari glæpamanna og svo á götuna að vistinni lokinni. En að lokum er það auðvitað Jacob sjálfur sem ber ábyrgð á eigin gjörðum og eigin lífi. Hann veit að honum verður aldrei fyrirgefið en með því að segja þessa sögu og lifa lífi sínu til góðs er dauði James Hodgkinson að minnsta kosti ekki til einskis. Niðurstaða Högg er leikrit sem er gott að foreldrar fari með unglinga sína á. Verkið hvetur til umræðu og vangaveltna og erindið brýnt. En það hefði mátt stytta verkið og aðlaga betur að stóra sviðinu. Jakob stendur sig vel í aðalhlutverkinu og Gói og Unnur Ösp eiga stórleik
Gagnrýni Símonar Birgissonar Leikhús Þjóðleikhúsið Mest lesið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Menning Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Fleiri fréttir Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Berrössuð hjón og endurtekið efni Digger grefur sína eigin gröf Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Sjá meira