Bílar

Sölu Chevrolet bíla hætt í Evrópu árið 2016

Finnur Thorlacius skrifar
Benedikt Eyjólfsson forstjóri í Chevrolet-sal Bílabúðar Benna.
Benedikt Eyjólfsson forstjóri í Chevrolet-sal Bílabúðar Benna. Mynd/Vilhelm
Sú frétt barst rétt í þessu úr herbúðum General Motors að fyrirtækið ætlar að hætta sölu Chervolt bíla í Evrópu frá og með árinu 2016. Chevrolet er ekki eina bílamerki fyrirtæksins því Opel merkið er í eigu þess og ætlar GM að leggja þess meiri áherslu á Opel bíla í Evrópu.

Hér á Íslandi selur Bílabúð Benna Chevrolet bíla og seljast Chevrolet bílar mjög vel hér á landi og í ár er Chevrolet með um 9% hlutdeild. Ekki kæmi það neitt á óvart að Bílabúð Benna myndi tryggja sér eitthvert annað bílamerki í stað Chevrolet, en fyrirtækinu hefur gengið vel í sölu, öndvert við víða annarsstaðar í álfunni. Kemur þá fyrst uppí hugann merki Opel, sem ekki hefur gengið sem best að selja hér á landi, enda var merkið dregið af markaði hérlendis til lengri tíma.  

Í fréttatilkynningu sem var að berast frá Bílabúð Benna segir: 

„Bílabúð Benna hefur undanfarna mánuði átt í viðræðum við bílaframleiðendur um að stækka vörulínu sína og er spennandi frétta að vænta af þeim viðræðum fyrir jól. Þessi óvænta ákvörðun General Motors mun því ekki hafa teljandi áhrif á rekstur fyrirtækisins,“ segir Benedikt Eyjólfsson forstjóri fyrirtækisins.

Bílabúð Benna mun selja Chevrolet bíla næstu tvö árin og fullur stuðningur helst í varahlutum, þjónustu og ábyrgðum hjá Bílabúð Benna næstu 20 ár.

Chevrolet Spark er söluhæsti smábíllinn á Íslandi í dag.mynd/Autoblog
GM hefur tapað miklum upphæðum á sölu bíla í Evrópu á undanförnum árum og frá 1999 hefur það tapað 2.160 milljarði króna. Með þessari aðgerð hyggst GM skrúfa fyrir þetta mikla tap og snúa vörn í sókn. 

GM mun þó ekki draga allar bílgerðir sínar alfarið af markaði í Evrópu því Corvette sportbíllinn verður áfram seldur þar, sem og Cadillac bílar. Þá er eitt land undanskilið í þessari ákvörðun, þ.e. Rússland, en Chevrolet bílar hafa átt miklu vinsældum að fagna þar og er fimmta stærsta bílamerkið. 

Sala Chevrolet bíla hefur verið stöðug í Evrópu frá því GM setti Chevrolet aftur á markað þar árið 2005, eftir nokkurt hlé, eða um 200.000 bílar. Þar telur um 1,2% af heildarbílamarkaðnum í Evrópu. Frá ársbyrjun og til enda október seldi Chevrolet 152.260 bíla og ef síðustu tveir mánuðirnir eru framreiknaðir gæti heildarsalan numið 183.000 bílum. Salan hefur minnkað fyrstu 10 mánuði ársins í Evrópu sem nemur 17% frá árinu í fyrra. 

Opel og systurfyrirtæki þess í Bretlandi, Vauxhall, hafa selt 3% minna af bílum í Evrópu en í fyrra og halda 6,7% markaðarins. Það eru 1.900 söluumboð Chevrolet bíla í Evrópu og mun Chevrolet vinna með hverjum og einum þeirra og ákvarða með þeim framtíðina. Meira en helmingur þeirra selur einnig Opel bíla. 






×