Bílar

Nýr sportbíll Kia í Detroit

Finnur Thorlacius skrifar
Þessi mynd af nýja sportbílnum frá Kia sýnir ekki mikið.
Þessi mynd af nýja sportbílnum frá Kia sýnir ekki mikið.
Fyrsti raunverulegi sportbíllinn frá Kia verður kynntur á bílasýningunni í Detroit sem hefst snemma í næsta mánuði. Kia cee´d GT er reyndar bíll með sportlega eiginleika, en hann er þó aðeins grimmari útgáfa af hefðbundnum fólksbíl.

Þessi nýi sportbíll er með 2+2 sætisfyrirkomulagi og á að búa að mikilli akstursgetu og fimi. Bíllinn verður afturhjóladrifinn og með 1,6 lítra forþjöppudrifna vél. Ef þessi tilraunabíll verður smíðaður er það væntanlega til þess að keppa við Toyota GT86/Subaru BRZ, bíla sem kosta um 25.000 dollara í Bandaríkjunum.

Kia hefur ekki sent frá sér mjög gefandi myndir af bílnum, en á meðfylgjandi mynd sjást þó útlínur hans að einhverju leiti. 






×