Bílar

Svona á ekki að aka inn á verkstæði

Finnur Thorlacius skrifar
Öfug en áhrifarík innkoma.
Öfug en áhrifarík innkoma.
Ef maður á annað borð þarf að rekast á hús við slælegan akstur er náttúrulega best að það sé verkstæði sem sérhæfir sig í viðgerðum á skemmdum bílum. Það var einmitt það sem ökumaður þessa bíls gerði í Texas í Bandaríkjunum.

Verkstæðið heitir því íroníska nafni Lone Star Collition, en ökumaðurinn var þó ekki sæmdur neinni stjörnu fyrir árangurinn. Ökumaður þessa GMC Yukon jeppa lenti í árekstri við fólksbíl, valt og fór öfugur innum vegg verkstæðisins.

Því er hægt að hefjast strax handa við viðgerð bílsins, nema þó ef sérhæfing verkstæðisins, sem á skiltinu bendir til þess að sérhæfi sig í viðgerðum á bílum framleiddum utan Bandaríkjanna, leyfi það ekki.

Lögreglan í Colleyville í Texas stendur í þeirri trú að neysla áfengis hafi átt þátt í þessu óhappi og því má víst vera að viðgerðin kosti eigandann skildinginn.






×