Bílar

Lexus hefur framleiðslu í Bandaríkjunum

Finnur Thorlacius skrifar
Lexus ES 350.
Lexus ES 350. MYND/Autoblog
Lúxusbílaarmur Toyota, Lexus, hefur lagt megináherslu á sölu Lexus bíla í Bandaríkjunum. Lexus hefur þó ekki framleitt eitt einasta eintak þar í landi þó svo Toyota hafi framleitt Toyota bíla af miklum móð í Bandaríkjunum. Það er um það bil að fara að breytast.

Í vikunni hófst framleiðsla á ES bíl Lexus í Georgetown í Kentucky, en þar hafa verið framleiddir Toyota bílar fram að þessu, þ.e. bílana Camry, Avalon og Venza. Framleiddir hafa verið 500.000 bílar þar á ári og einar 600.000 Toyota vélar. Þar ætlar Lexus nú að smíða 50.000 ES bíla á ári.

Lexus seldi 72.581 ES bíla í Bandaríkjunum í fyrra svo fyrirsjánlegt er að Lexus þurfi áfram að flytja inn einhvern hluta þess bíls frá Japan, en Lexus hefur eingöngu verið framleiddur þar fram að þessu. Þessi stækkun verksmiðjunnar í Kentucky krefst 750 nýrra starfsmanna. 






×