Bílar

Gamalt kjarnorkuver að Tesla bílaverksmiðju?

Finnur Thorlacius skrifar
Fessenheim kjarnorkuverið í Alsace í Frakklandi.
Fessenheim kjarnorkuverið í Alsace í Frakklandi.
Ségoléne Royal sem fer með orkumál fyrir frönsk yfirvöld hefur stungið uppá því við Elon Musk, forstjóra og eiganda Tesla rafbílaframleiðandans, að gamalt kjarnorkuver í Frakklandi gæti hentað ágætlega sem verksmiðja Tesla.

Musk er að leita að hentugum stað í Evrópu til að smíða Tesla bíla fyrir Evrópumarkað og á ferð sinni í Frakklandi í janúar viðraði hann þessa ósk sína og að draumastaðsetningin væri í Alsace héraði í Frakklandi vegna landfræðilegrar legu. Kjarnorkuverið er einmitt staðsett í Alsace, svo til mitt á milli Strasbourg og Basel í Sviss.

Alsace héraðið á landamæri að bæði Þýskalandi og Sviss og væri því heppilegur dreifingastaður fyrir Tesla bíla. Kjarnorkuverið sem um ræðir er í Fessenheim og til stendur að leggja það niður í ár, enda er það elsta nústarfandi kjarnorkuver í Frakklandi.

Einhvern tíma tekur þó að ganga svo frá verinu að hægt verði að breyta því í bílaverksmiðju og það gæti fælt Elon Musk frá þessari tillögu Ségoléne Royal.






×