Bílar

Subaru innkallar 52.000 Outback og Legacy

Finnur Thorlacius skrifar
Subaru Outback.
Subaru Outback.
Eigendum 52.000 Subaru Outback og Legacy bíla í Bandaríkjunum og Kanada hefur verið bent á það að leggja bílum sínum vegna galla í stýrisstöngum. Eru þeir af árgerðum 2016 og 2017. Bílar þeirra verða innkallaðir og skipt um þessar stangir, en bilun í þeim getur gert bílana stjórnlausa og því um mjög alvarlegan galla að ræða.

Rétt er að taka fram að allir þessir innkölluðu bílar eru í N-Ameríku og enginn þeirra svo vitað sé um er á landi, nema hafi slíkir bílar verið fluttir hingað til lands beint frá Bandaríkjunum eða Kanada. Af þessum 52.000 bílum voru 48.500 seldir í Bandaríkjunum en 3.500 í Kanada.

Þessi innköllun nú er svokölluð “Stop Sale”-innköllun og mega söluaðilar þessara bíla hvorki selja né leyfa reynsluakstur á þeim og eigendum bent á að leggaj þeim strax. Gallinn uppgötvaðist hjá einum eiganda Subaru Outback bíls þann 3. maí, en bilunin í bíl hans olli ekki slysi, né heldur hafa aðrir bílar með þennan galla lent í slysi hans vegna. Subaru hefur þegar hafið viðgerðir á þessum gölluðu bílum og lánar eigendum þeirra aðra Subaru bíla á meðan.






×