Bílar

Nýr Citroën C3 með Cactus-útliti

Finnur Thorlacius skrifar
Nýr Citroën C3.
Nýr Citroën C3.
Citroën kynnti nýjan C3 bíl sinn í lok síðasta mánaðar og kom það flestum á óvart að útlitið hefur hann að stórum hluta erft frá hinum vinsæla Citroën C4 Cactus og er kominn með samskonar hnjaskbólur á hliðunum. Bíllinn er einnig kominn með annan lit á þakinu og vindkljúf að aftan.

Bíllinn er nú 399 mm langur og með stærra 300 lítra skott. Ein af nýjungunum sem kynnt er í þessum bíl er myndbandskerfi sem fer í gang ef kerfið skynjar hættu og hugsanlegan árekstur. Nýtt upplýsingakerfi verður í bílnum með Android og Apple CarPlay möguleikum.

Hægt verður að fá blindpunktsviðvörun og akreinaskiptivara í bílinn, sem ekki er algengt með svo litla bíla. Bensínvélar bílsins verða frá 82 til 110 hestöfl og dísilvélarnar 75, 99 og 120 hestafla.






×