Bílar

Rafmagnssendibíll rúllar upp Teslu og Ferrari

Finnur Thorlacius skrifar
Bílar búnir rafmagnsmótorum eru margir hverjir afar öflugir og það á sannarlega við þennan sendibíl frá Atieva fyrirtækinu frá Silikondalnum í Kaliforníu. Hann er 900 hestöfl og fjórhjóladrifinn. Sendibíllinn er reyndar af Mercedes Benz Vito gerð, en Atieva hefur breytt honum í rafmagnsbíl og kallar hann Edna.

Til gamans má geta þess að margir af starfsmönnum Atieva eru fyrrum starfsmenn Tesla. Þeim lék forvitni á að vita hvernig Edna myndi standa sig gegn öflugustu gerð Tesla Model S og Ferrari California bíl í spyrnu. Skemmst er frá því að segja að hann skilur þá eftir í rykinu þrátt fyrir að hinir bílarnir séu nú engir aumingjar.

Edna er nefnilega rétt yfir 3 sekúndum í hundraðið. Atieva fyrirtækið hefur áætlanir um að kynna rafmagnsfólksbíl árið 2018 en útlit hans hefur ekki enn verið kynnt. Sjá má Edna sendibílinn kljást við Tesluna og Ferrari bílinn í meðfylgjandi myndskeiði.






×