Bílar

Eyesight Subaru öruggast að mati ADAC í Þýskalandi

Finnur Thorlacius skrifar
Eyesight öryggisbúnaður Subaru styðst við tvær myndavélar í framrúðu bílanna.
Eyesight öryggisbúnaður Subaru styðst við tvær myndavélar í framrúðu bílanna.
Félag þýskra bíleigenda (ADAC) birti í vikunni niðurstöður tilrauna á öryggi forvarnarkerfa í sex mismunandi bíltegundum þar sem komist er að þeirri niðurstöðu að Eyesight í Subaru sýnir bestan heildarárangur. Segir dómnefndin að Eyesight bregðist við á á árangursríkan hátt, ekki síst þar sem hætta er á ákeyrslu á gangandi vegfarendur, en einnig þar sem hætta er á aftanákeyrslu og þegar aðrar hindranir eru í veginum. Kerfið virki jafn vel að nóttu sem degi og veiti ökumönnum betri aðstoð en öryggiskerfi lúxusbíla.

Þrívíddarskynjun

ADAC prófaði öryggiskerfi sex bíltegunda (emergency brake assistance systems), bæði í lúxusbílum og hefðbundnum meðalstórum fjölskyldubílum. Sérstaða Eyesight eru tvær myndavélar (í stað einnar) sem greina þrívíða hluti í umhverfinu og senda upplýsingar til tölvu bílsins sem vinnur úr gögnunum og gefur hemlakerfi bílsins fyrirmæli í samræmi við aðsteðjandi hættu í hverju tilviki.

Eyesight fékk fullt hús stiga í öllum þremur aðalflokkunum sem tilraunirnar tóku til og býr ekkert kerfi enn sem komið er yfir sömu getu og Eyesight. Það kom t.d. í ljós í prófunum ADAC að þótt tilraunirnar væru gerðar á dökkklæddum vegfarendum, eða að nóttu til þar sem engin götuljós voru til staðar, gat Eyesight brugðist við á jafn árangursríkan hátt og um hábjartan dag.

Enn ekki verið þróað betra kerfi

Í þróun forvarnarkerfa fyrir bíla styðjast bílaframleiðendur almennt við ýmsar gerðir hátæknibúnaðar með skynjurum á borð við myndavél, ratsjá og örbylgjur. Þrátt fyrir það hefur ekki enn komið fram kerfi sem sýnir jafn mikinn árangur og Eyesight gerir og staðfest hefur verið í fjölda tilrauna frá því að Subaru kynnti kerfið til sögunnar. Sérstaða Eyesight er sú að kerfið þekkir mjög vel algengustu fyrirbærin í umferðinni, svo sem nálæga bíla, mannslíkama og önnur fyrirbæri.

Eyesight sýnir hámarksárangur við hraða upp að 45 km/klst. en þótt hraðinn sé meiri en það sýnir Eyesight samt mjög góan árangur sem dregið getur úr líkum á ákeyrslu. Auk ADAC hafa fleiri óháðir aðilar framkvæmt margvíslegar prófanir á Eyesight, svo sem bandaríska umferðaröryggisstofnunin IIHS (American Insurance Institute for Highway Safety), sambærilegir aðilar í Japan og víðar. Í öllum tilvikum sýnir sig að ekkert annað kerfi veitir enn sem komið er sambærilega forvörn og Eyesight.






×