Bílar

GYMKHANA 9 með Ken Block

Finnur Thorlacius skrifar
Ken Block er enginn venjulegur ökumaður og GYMKHANA myndbönd hans nánast ekki úr þessum heimi heldur. Margir bílaáhugamenn bíða í ofvæni eftir nýjum myndböndum frá honum og hérna sést það níunda og nýjasta í röðinni af GYMKHANA myndbandaröð hans.

Sem oft áður ekur Ken Block Ford Focus RS RX bíl en hann er hér í formi 600 hestafla tryllitækis. Myndatakan fór fram á yfirgefnu iðnaðarsvæði í Buffalo í New York ríki og þar fékk Ken Block svo sannarlega að leika lausum hala.

Akstur hans er náttúrulega með ólíkindum og hann hefur svo mikla stjórn á bíl sínum að unaður er að sjá. Myndskeiðið hér að ofan er ríflega 8 mínútna langt og lyktar langar leiðir af gúmmíi. Góða skemmtun!






×