Bílar

Formula E til New York

Finnur Thorlacius skrifar
Fyrsta aksturskeppni sem fram fer innan borgarmarka New York borgar mun verða haldin næsta júlí en þá verður keppt í Formula E keppnisröð rafmagnsbíla. Akstursbrautin í New York verður í Brooklyn hverfinu og verður með 13 beygjum og fer um Pier 11 hafnarhverfið og Brooklin Cruis Terminal.

Þessi ákvörðun forsvarsmanna Formula E keppninnar markar heilmikil tímamót og ætti að vekja aukinn áhuga á þessari keppni í Bandaríkjunum. Eru New York búar fyrir vikið kátir með stjórn borgarinnar með þetta frumkvæði.

Formula E keppnin fer víða um borgir heims og fyrirhugaðar eru keppnir í Hong Kong, Buenos Aires, París, Berlín, Marrakesh og Montreal í Kanada, auk fleiri keppnisstaða. Formula E keppnismótaröðin er aðeins á sínu þriðja ári og síaukinn áhugi er á keppninni.

Frægir ökumenn bætast sífellt við í þessa keppni kappakstursbíla sem aðeins eru drifnir áfram af rafmagni og koma margir þeirra úr Formula 1 keppnismótaröðinni.






×