Bílar

700 hestafla Porsche Panamera E-Hybrid í París

Finnur Thorlacius skrifar
Porsche Panmera E-Hybrid.
Porsche Panmera E-Hybrid.
Porsche mun frumsýna kynslóð númer tvö af Panamera á bílasýningunni í París. Ein eftirtektarverðasta gerðin af þessum magnaða bíl sem afhjúpuð verður þar, er Panamera í Plug–In Hybrid útfærslu. Hann er með fjórhjóladrifi, 50 km drægi og sameinaða krafta upp á 700 hestöfl.

Hybrid lausnin frá Porsche er rómuð fyrir að sameina afl og aksturseiginleika og hefur sannað yfirburði sína m.a. með sigrum 919 Hybrid bílanna í Le Mans þolaksturkeppninni árin 2015 og 2016.

Í fréttatilkynningu segir að þegar Panamera kom fyrst fram á sínum tíma hafi framleiðandinn skilgreint hann sem nýja vídd í flokki lúxusbíla.“Menn höfðu ekki séð jafn magnaða sporteiginleika í svo stórum lúxusbíl áður,“ segir Thomas Már Gregers, sölustjóri Porsche á Íslandi.

„Eitt af markmiðum Porsche að baki Panamera var að allir í bílnum, hvar sem þeir sitja, fái jafn stóran hlut í óviðjafnanlegri akstursánægju og ég leyfi mér að fullyrða að það hefur gengið eftir.“ segir Thomas.






×