Beint af tískupallinum í París í búðirnar Ritstjórn skrifar 27. janúar 2017 10:15 Nýja H&M Studio línan fer á sölu 2.mars. Mynd/H&M
Í gær tilkynnti sænski fatarisinn H&M að Studio línan þeirra, sem er iðulega sýnd á tískuvikunni í París, muni fara beint í sölu í þetta sinn. Það þýðir að spenntir viðskiptavinir þurfa ekki að bíða fram á haust eftir að fá að versla flíkurnar úr línunni. Fjölmargir hönnuðir hafa tekið upp á þessu nýja kerfi, að setja vörurnar á sölu um leið og þær eru sýndar á tískuvikunum. Á meðal þeirra eru Burberuu, Tom Ford, Tommy Hilfiger, Ralph Lauren og fleiri sem eru sammála um það að það er þörf á breytingum á því hvernig tískuvikurnar eru settar upp. Þetta nýja kerfi er kallað 'See Now, Buy Now' og eru margir sem halda því fram að þetta sé framtíðin. Í dag þurfa viðskiptavinir að bíða í sex mánuði eftir að flíkur frá tískuvikunum fara á sölu. Í millitíðinni hafa því ódýrari fatabúðir líkt og Zara nægan tíma til þess að herma eftir vörunni og setja hana á sölu áður en upprunalega varan er komin í búðir. Tískusýningar H&M eru ávallt glæsilegar.Glamour/GettyÁ hverju ári má sjá stórstjörnur á fremsta bekk hjá H&M. Hér má sjá Ciara og Emma Roberts sem mættu á sýninguna í fyrra.Olivia Palermo lét einnig sjá sig á seinustu sýningu.
Mest lesið Klæddist breskri hönnun Glamour Húðflúraður fyrirliði sem gefst aldrei upp Glamour Steldu stílnum: Hið fullkomna haustdress Glamour Allt í plasti hjá Calvin Klein Glamour Fyrsta herralína Stella McCartney lítur dagsins ljós Glamour Láttu slabbið ekki stoppa þig Glamour Blue Ivy sussaði á foreldra sína á Grammy Glamour Eiga von á öðru barni Glamour Heiða Rún vekur athygli á tískuvikunni í London Glamour Crocs skór á tískupallinn Glamour