Stj.mál

Fréttamynd

Boðað til kosninga í Bretlandi

Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hefur boðað til þingkosninga í landinu 5. maí næstkomandi. Blair gekk á fund Elísabetar Bretlandsdrottningar í morgun og bað hana um að leysa upp þingið svo hægt yrði að ganga til kosninga.

Erlent
Fréttamynd

Stefnir í spennandi kosningar

Það stefnir í spennandi kosningar í Bretlandi í næsta mánuði en Tony Blair boðaði í dag að gengið yrði til þingkosninga 5. maí. Síðustu fylgiskannanir sýna að ekki hefur verið jafnmjótt á mununum á milli Verkamannaflokksins og Íhaldsflokksins í þrettán ár.

Erlent
Fréttamynd

Jákvæður rekstur í Firðinum

Rekstur Hafnarfjarðar fyrir fjármagnsliði var jákvæður um 727 milljónir króna og var það 521 milljónum króna betri árangur en áætlanir gerðu ráð fyrir. Sjálfstæðismenn gagnrýna að ársreikningurinn 2004 var kynntur blaðamönnum áður en hann var kynntur öllum bæjarfulltrúum.

Innlent
Fréttamynd

Hafna Frakkar stjórnarskrá ESB?

Fimm nýlegar skoðanakannanir benda allar til þess að meirihluti Frakka ætli að hafna stjórnarskrá Evrópusambandsins. Stuðningur við stjórnarskrána hefur hægt og bítandi farið minnkandi og varð það til þess að kosningu um hana, sem fram átti að fara í haust, var flýtt til 29. maí.

Erlent
Fréttamynd

Vildi ekki verða veðurtepptur

Varautanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem ætlaði að eiga fund með Davíð Oddssyni utanríkisráðherra í dag, hætti við komu sína til Íslands á síðustu stundu þar sem hann var hræddur um að verða innlyksa á Íslandi vegna veðurs.

Innlent
Fréttamynd

Sagt auka líkur á hægristjórn

Nýtt kvennaframboð veldur titringi í sænskum stjórnmálum. Sumir spá því að það auki möguleikana á að hægristjórn taki við eftir næstu kosningar.</font /></b />

Erlent
Fréttamynd

Meirihlutasamstarfið í hættu

Meirihlutasamstarf Sjálfstæðisflokksins og Vinstrihreyfingarinnar - græns Framboðs í sveitarstjórn Skagafjarðar er í hættu. Þar er komin upp pattstaða eftir að einn fulltrúi Sjálfstæðisflokksins hætti þátttöku í meirihlutasamstarfinu.

Innlent
Fréttamynd

Berlusconi beið afhroð

Flokkur Silvio Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu, beið afhroð í sveitastjórnarkosningum sem fram fóru á Ítalíu í gær. Berlusconi tapaði í ellefu af þrettán héruðum en bandalag miðju- og vinstrimanna, undir stjórn Romano Prodis, vann stórsigur. Þrátt fyrir andlát páfa náði kosningaþátttaka rúmlega sjötíu prósentum.

Erlent
Fréttamynd

Búið að ákveða kaupendur?

Lúðvík Bergvinsson, þingmaður Samfylkingarinnar, segir þrálátan orðróm í viðskiptalífinu um að búið sé að ákveða fyrirfram hverjir kaupi Landssímann og að fráleit skilyrði til kaupenda virðist heimatilbúin til að koma verðmætum til vildarvina.

Innlent
Fréttamynd

Segir söluferli Símans gagnsætt

Jón Sveinsson, formaður einkavæðingarnefndar, segir unnið að því að skilgreina vægi hvers þáttar sem horft verður til þegar tilboð fjárfesta í Símann verða metin. Það verði kynnt um leið og verklagsreglurnar liggi fyrir.

Innlent
Fréttamynd

Árangur í kjarnorkuviðræðunum

Mohammad Khatami, forseti Írans, segir árangur hafa náðst í viðræðum sínum og Jacques Chiracs, forseta Frakklands, um kjarnorkumál í dag. Tilefni viðræðannna var fyrst og fremst kjarnorkustefna Írana sem valdið hefur mörgum ríkjum heims áhyggjum.

Erlent
Fréttamynd

Meirihlutinn óstarfhæfur

Meirihluti sveitarstjórnar Skagafjarðar er óstarfhæfur eftir að Bjarni Maronsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, lýsti því yfir að upp væri kominn trúnaðarbrestur milli sín og forseta sveitarstjórnar, Gísla Gunnarssonar Sjálfstæðisflokki.

Innlent
Fréttamynd

Aflýsir fundi með Davíð

Robert B. Zoellick, varautanríkisráðherra Bandaríkjanna, aflýsti fundi með Davíð Oddssyni utanríkisráðherra, sem fram átti að fara í gær. </font />

Innlent
Fréttamynd

Vantrauststillaga á ráðherra

Karl I. Hagen, formaður Framfaraflokksins í Noregi sem veitir minnihlutastjórninni þar stuðning án þess að eiga aðild að henni, ætlar í dag að legga fram vantrauststillögu á Kristínu Kron Bevald varnarmálaráðherra.

Erlent
Fréttamynd

Skerða framlög ganganna

Samkvæmt nýkynntri samgönguáætlun fara 85 milljarðar króna til samgöngumála næstu fjögur árin en af því fara 60 milljarðar í vegakerfið. Verkefni í grunneti, en svo kallast allir stofn-, tengi- og landsvegir í vegakerfinu, skiptast þannig að tæpar tíu milljarðar króna fara til verkefna á landsbyggðinni en 6,3 milljarðar til verkefna á höfuðborgarsvæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Símakort tengd farsímanotanda

Skylt verður að skrá alla notendur svokallaðra frelsiskorta, sem eru fyrirframgreidd farsímakort, verði frumvarp um breytingar á fjarskiptalögum samþykkt á Alþingi óbreytt.

Innlent
Fréttamynd

Yfirgefa Líbanon fyrir apríllok

Sýrlendingar hafa heitið því að hverfa með allan herafla sinn burt frá Líbanon fyrir apríllok. Þá verði eftirlitsmönnum Sameinuðu þjóðanna leyft að fara til Sýrlands í því augnamiði að staðfesta brotfluttninginn.

Erlent
Fréttamynd

Akayev sagði af sér

Askar Akayev, forseti Kirgistans, er sagður hafa sagt af sér í Moskvu í morgun þar sem hann er í eins konar útlegð vega víðtækrar andstöðu við hann og stjórn hans í heimalandinu. Þar með er hægt að hefja undirbúning fyrir kosningar í landinu sem haldnar verða þann 26. júní.

Erlent
Fréttamynd

Símafyrirtækjum gert að hlera

Síminn býr yfir búnaði til að hlera og taka upp símtöl. Samkvæmt frumvarpi um breytingar á fjarskiptalögum skulu öll fjarskiptafyrirtæki á Íslandi koma sér upp slíkum búnaði. Var frumvarpið rætt á fundi ríkisstjórnarinnar á föstudaginn.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri andvígir álveri

"Þetta eru svipaðar niðurstöður og ég átti von á og mótstaða Skagfirðinga við álver kemur ekkert á óvart," segir Ársæll Guðmundsson, sveitarstjóri Skagafjarðar, en á fundi sem Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hélt á Sauðárkróki í gærkvöldi kom fram að 45 prósent Skagfirðinga eru á móti álversframkvæmdum á svæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Færanleg sjúkrastöð í Palestínu

Fimm þingmenn úr öllum flokkum á Alþingi hafa lagt fram þingsályktunartillögu um kaup og rekstur á færanlegri sjúkrastöð í Palestínu. Þingmennirnir ferðuðust til Palestínu og Ísrael um páskana þar sem þeir kynntu sér ástandið.

Innlent
Fréttamynd

Deilt á stjórnina vegna Símasölu

"Ákveðið hefur verið að selja hlut ríkisins í Símanum í einu og heilu lagi einum hóp kjölfestufjárfesta," sagði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra á Alþingi í gær er hann kynnti skýrslu framkvæmdanefndar um einkavæðingu varðandi sölu á Símanum.

Innlent
Fréttamynd

Talsmaður þingsins loks valinn

Talsmaður írakska þingsins hefur loks verið valinn eftir margra daga samningaviðræður. Súnnítinn Hajim Al-Hassani varð fyrir valinu og þar með hefur verið staðið við það loforð að súnnítar fengju með einhverjum hætti að koma að myndun nýrrar ríkisstjórnar í landinu.

Erlent
Fréttamynd

Sölu Símans verði lokið í júlí

Allur eignarhlutur ríkisins í Símanum verður seldur í einu lagi til hóps fjárfesta í júlí í sumar. Enginn fjárfestir í hópnum má eiga meira en 45 prósent hlut í fyrirtækinu og verða því að minnsta kosti þrír aðilar að vera á bak við hvert tilboð. Fyrir árslok 2007 verður að bjóða almenningi og öðrum fjárfestum að kaupa 30 prósent af heildarhlutafé.

Innlent
Fréttamynd

Sundabraut ekki á vegaáætlun

Engar framkvæmdir eru ráðgerðar vegna Sundabrautar í nýrri samgönguáætlun til næstu fjögurra ára sem kynnt verður á næstunni. Gert er ráð fyrir að verkhönnun hefjist þegar lega brautarinnar hefur verið ákveðin, auk þess sem ákveða skal tilhögun fjármögnunar verksins en um frekari aðgerðir verður ekki að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Stórtap Berlusconis?

Svo virðist sem Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, hafi beðið afhroð í sveitastjórnarkosningum sem lauk í landinu í dag. Samkvæmt útgönguspám sem birtust nú síðdegis hefur bandalag miðju- og vinstriflokka, undir forystu Romanos Prodis, fyrrverandi forseta Evrópusambandsins, unnið mikinn sigur.

Erlent
Fréttamynd

Á fimmta hundrað manns til Kína

Á fimmta hundrað manns mun fara til Kína með forseta Íslands þegar hann verður þar í opinberri heimsókn dagana 15. til 22. maí. Kína er í stjórnmálasambandi við 165 ríki en aðeins 4-5 þjóðarleiðtogum er boðið þangað árlega.

Innlent
Fréttamynd

Fá 4,2 milljarða í styrki

854 bændur deila með sér 4,2 milljörðum króna sem greiddir eru í beingreiðslur vegna mjólkurframleiðslu. Það þýðir að hver og einn fær að meðaltali sem nemur 4,9 milljónum króna í beina ríkisstyrki á ári hverju.

Innlent
Fréttamynd

Hættir vegna trúnaðarbrests

Bjarni Maronsson, fulltrúi Sjálfstæðisflokks í sveitarstjórn Skagafjarðar, hefur hætt þátttöku í meirihlutasamstarfi Sjálfstæðisflokks og Vinstri - grænna. Bjarni segir ástæðu þessa vera trúnaðarbrest á milli hans og Gísla Gunnarssonar, forseta sveitarstjórnar.

Innlent
Fréttamynd

Hrossakaup formannanna

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri-grænna, sagði í umræðum á Alþingi um sölu Símans að ríkisstjórnin væri að hanna fákeppni. Hann benti jafnframt á að meirihluti landsmanna væri samkvæmt skoðanakönnunum á móti því að selja Símann.

Innlent