Sport

Met í NBA í nótt

Donyell Marshall, framherji Toronto Raptors, jafnaði NBA metið yfir flestar þriggja stiga körfur í einum leik í nótt, þegar lið hans tók Philadelphia í bakaríið128-110. Marshall setti 12 þriggja stiga körfur í leiknum, úr 19 tilraunum og jafnaði þar með met Kobe Bryant frá árinu 2003.  Tvær tilraunir Marshall til að slá metið undir lok leiksins mistókust, félögum hans til mikils ama, en þeir höfðu reynt að spila hann uppi svo hann næði að slá metið en allt kom fyrir ekki. Liðin tvö settu einnig met yfir flestar þriggja stiga körfur í einum leik, en þau settu niður 31 slíka í leiknum og þar af var lið Toronto með 21, sem einnig er það mesta sem eitt lið hefur skorað í einum leik í deildinni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×