Sport

Schumacher fullur sjálfstrausts

Þó að Renault hafi komið best út úr fyrstu keppni Formúlu 1 kappakstursins sem fram fór í Melbourne í Ástralíu, er Michael Schumacher hjá Ferrari sannfærður um að hann geti veitt liðinu harða keppni í næstu keppni sem fram fer rétt fyrir utan Kúala Lúmpúr í Malasíu. "Rubens sýndi hvers megnugir við erum í Melbourne. Frammistaða okkar var jöfn og góð þannig að ég er fullur sjálfstrausts," sagði Schumacher. Keppnin í Malasíu er ein sú erfiðasta fyrir ökumenn Formúlunnar. "Hún er sérstaklega erfið líkamlega og því hefur enginn okkar efni á að slaka eitthvað á."



Fleiri fréttir

Sjá meira


×