Sport

O´Neal frá út tímabilið?

Lið Indiana Pacers í NBA-körfuboltanum varð fyrir áfalli þegar miðherjinn Jermaine O´Neal meiddist illa á öxl fyrr í þessum mánuði. Ólíklegt þykir að hann muni leika meira með liðinu í vetur og er það mikil blóðtaka fyrir Pacers en O´Neal er með 24,8 stig, 9,0 fráköst og 2,1 varin skot að meðaltali í leik. "Við verðum að halda ótrauðir áfram þrátt fyrir að hann verði ekki með okkur," sagði Rick Carlisle, þjálfari Pacers. Læknarnir sem eru með O´Neal í sinni umsjá hafa stungið upp á skurðaðgerð. "Þegar bólgan er hjöðnuð munu þeir ákveða hvaða leið er best að fara," bætti Carlisle við. Indiana Pacers með 50% vinningshlutfall um þessar mundir og er í sjöunda sæti Austurdeildarinnar, hálfum sigri á undan Orlando Magic sem er í áttunda sæti. Átta efstu lið Austursins komast í úrslitakeppnina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×