Sport

Fjölnir og Keflavík áfram

Fjölnir og Keflavík eru komin í undanúrslit Intersportdeildarinnar í körfuknattleik karla. Fjölnir sigraði Skallagrím á heimavelli með 72 stigum gegn 70 í æsispennandi leik. Hjá Fjölni voru Jeb Ivey og William Coley stigahæstir með 21 stig, en hjá Borgnesingum voru það George Byrd og Clifton Cook sem gerðu 23 stig auk þess sem Byrd tók 22 fráköst. Í Keflavík sigruðu heimamenn nágrana sína úr Grindavík með fimm stiga mun, 80-75. Nick Bradford gerði 25 stig fyrir heimamenn en Darrel Lewis 21 fyrir Grindavík.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×