Sport

Sjöunda tap Jazz í röð

Utah Jazz tapaði sjöunda leik sínum í röð þegar liðið sótti Indiana Pacers heim í NBA-körfuboltanum í fyrrinótt. Stephen Jackson var stigahæstur heimamanna með 28 stig og lokatölur urðu 103-84. Pacers berst nú fyrir sæti í úrslitakeppninni en liðið er sem stendur í sjöunda sæti Austurdeildarinnar, sextán og hálfum sigurleik á eftir Miami Heat sem situr sem fastast í efsta sætinu



Fleiri fréttir

Sjá meira


×