Sport

Nelson hættur að þjálfa Mavericks

Hinn sigursæli þjálfari Don Nelson hjá Dallas Mavericks í NBA-deildinni í körfuknattleik sagði starfi sínu lausu um helgina og hefur ákveðið að hætta þjálfun. Nelson er 64 ára gamall og hefur einnig gegnt starfi eins konar framkvæmdastjóra hjá félaginu. Hann mun nú draga sig í hlé frá þjálfuninni, en heldur áfram að starfa við stjórnunar- og ráðgjafarstörf hjá Mavericks, þar sem hann hefur verið við störf síðan 1997. Nelson á að baki einstakan feril sem þjálfari og hefur þrisvar sinnum hlotið nafnbótina þjálfari ársins á þeim 28 árum sem hann hefur verið í faginu. Það verður Avery Johnson sem tekur við af Nelson hjá Dallas, en hann hefur verið aðstoðarmaður Nelsons um tíma.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×