Sport

Phil Jackson þjálfar Magic?

Bandarískir íþróttaspekingar eru iðnir við að velta vöngum yfir hver verði arftaki Johnny Davis sem var rekinn frá Orlando Magic í NBA-körfuboltanum á dögunum. Phil Jackson, Maurice Cheeks, Flip Saunders og Eric Musselman (fyrrum aðstoðarmaður Chuck Daly, fyrrverandi þjálfara Magic) hafa verið orðaðir við stöðuna en þó hefur ekkert fengist staðfest í þeim efnum. Gamla kempan Mark Jackson, sem gerði garðinn frægan með New York Knicks, hefur einnig verið nefndur sem eftirmaður Davis.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×