Sport

Stórleikur í Seljaskóla

Gríðarleg stemning er að myndast í Seljaskóla í Breiðholtinu þar sem önnur viðureign ÍR og Keflavíkur er að hefjast í undanúrslitum Intersportdeildarinnar í körfuknattleik hefst kl. 19.15. 5 ár eru síðan lið utan Suðurnesja vann Íslandsmeistaratitilinn en það var vorið 2000 þegar KR-ingar hömpuðu titlinum. ÍR vann fyrsta leikinn sem fram fór á heimavelli Keflvíkinga á laugardaginn, 88-80, en liðið sem fyrr vinnur þrjá leiki kemst í úrslit gegn Snæfelli eða Fjölni. Þar leiðir Snæfell 1-0 eftir 103-101 sigur á sunnudag í framlengdum leik í Stykkishólmi og mætast liðin öðru sinni annað kvöld. Búast má við húsfylli í Seljaskóla en þar á bæ eru menn orðnir langeygir eftir titli. Síðasti Íslandsmeistaratitill ÍR leit dagsins ljós árið 1977 en fáir reikna með að liðið nái að leggja hið firnasterka Keflavíkurlið í þrígang þó svo að fyrsti leikurinn hafi unnist. Keflavík er Íslandsmeistari síðustu tveggja ára og gerir nú harða atlögu að sínum þriðja titli í röð.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×