Sport

Glenn Robinson til Spurs

Lið San Antonio Spurs hefur fengið til sín framherjann Glenn Robinson til að styrkja sig fyrir lokaátökin í úrslitakeppninni. Robinson var samningslaus og hefur lítið leikið síðan samningi hans við New Orleans Hornets var rift í mars síðastliðnum. Robinson var valinn fyrstur í nýliðavalinu árið 1994 og var kosinn nýliði ársins árið eftir, en hann var mikill skorari þegar hann var upp á sitt besta. Spurs hafa verið í nokkrum vandræðum með stigaskorun undanfarið, ekki síst vegna meiðsla Tim Duncan og Devin Brown og vonast þeir til að Robinson geti hjálpað þeim að taka á þeim vanda.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×