Sport

Lakers missir af úrslitakeppninni

Los Angeles Lakers steinlá fyrir Phoenix Suns á útivelli, 125-99, í í NBA-körfuboltanum í nótt. Búast má við að bandarískir íþróttaspekingar fari hamförum í kjölfarið því með tapinu missti Lakers endanlega af sæti í úrslitakeppninni. Liðið situr í 11. sæti Vesturdeildarinnar með 44,6% vinningshlutfall, tuttugu og fjórum sigurleikjum á eftir Suns sem er efst allra liða í NBA með 77% vinningshlutfall. Kobe Bryant, aðalstjarna Lakers-liðsins, hefur hlotið mikla gagnrýni eftir að þjálfarinn Phil Jackson og miðherjinn Shaquille O´Neal hurfu á braut. Þetta er í fyrsta sinn á ferli Bryants sem að Lakers kemst ekki í úrslitakeppnina og í fjórða sinn síðan 1960.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×