Sport

Desnica ráðinn þjálfari KR

 Körfuknattleiksdeild KR hefur ráðið Bojan Desnica sem þjálfara meistaraflokks kvenna næstu tvö árin. Bojan tekur við af Grétu Maríu Grétarsdóttir sem þjálfaði liðið undanfarin tvö ár. Bojan, sem er 29 ára gamall Serbi, hefur þjálfað yngriflokka KR í nokkur ár, síðastliðinn vetur var hann aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla og aðalþjálfari unglingaflokks karla og kvenna. Meistaraflokkur kvenna féll sem kunnugt er í 2. deild og verður það verkefni Bojan að byggja liðið upp að nýju og koma því í efstu deild.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×