Sport

Öruggur sigur á Englendingum

Ísland sigraði England örugglega í öðrum vináttulandsleik þjóðanna í körfubolta kvenna á jafn mörgum dögum í gær, 78-59, en leikið var í Kópavogi. Birna Valgarðsdóttir lék sinn 61. landsleik og bætti landsleikjamet Önnu Maríu Sveinsdóttur. Þá bætti Birna met Bjargar Hafsteinsdóttur yfir flestar þriggja stiga körfur fyrir A-landsliðið. Liðin mætast þriðja sinni í Njarðvík í dag.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×