Sport

San Antonio NBA meistarar !

San Antonio Spurs tryggðu sér í nótt NBA meistaratitilinn í körfubolta þegar liðið sigraði Detroit Pistons í hreinum úrslitaleik, 81-74 í Texas. Þetta var sjöundi leikur liðanna í úrslitaeinvíginu sem Spurs unnu samtals 4-3. Tim Duncan var stigahæstur meistaranna nýkrýndu með 25 stig og var valinn besti leikmaður úrslitakeppninnar. Manu Ginobili skoraði 23 stig fyrir Spurs. Richard Hamilton var stigahæstur Detroit með 15 stig.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×