Sport

Stjörnuleikurinn í Las Vegas 2007

Stjörnuleikurinn í NBA-körfuboltanum 2007 verður í Las Vegas. Þetta ákvað stjórn deildarinnar í gær. Þetta verður í fyrsta sinn sem stjörnuleikurinn fer fram í borg sem ekki státar af körfuboltaliði. Stjórn NBA-deildarinnar hefur hingað til ekki leyft að stjörnuleikurinn fari fram í borg þar sem heimilt er að veðja á úrslit körfuboltaleikja. Borgaryfirvöld í Las Vegas hafa fallist á að banna öll veðmál sem tengjast stjörnuleiknum. Stjórn NBA-deildarinnar hefur til athugunar að stjörnuleikurinn verði í París 2008 eða 2009. Í ár verður stjörnuleikurinn háður í Houston í Texas.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×