Sport

Sigur á Hollendingum

Íslendingar sigruðu Hollendinga með 78 stigum gegn 74 í vináttulandsleik í körfuknattleik Groningen í Hollandi í gærkvöldi. Í hálfleik var staðan 37-36 fyrir íslenska liðið. Jón Arnór Stefánsson skoraði 26 stig og Hlynur Bæringsson 22 auk þess sem hann tók 11 fráköst. Logi Gunnarsson skoraði 10 stig og Jakob Sigurðarson 7. Sigur Íslendinga í gær var aðeins þriðji sigurinn á Hollendingum en þeir hafa unnið 15 af 18 leikjum þjóðanna. Liðin mætast öðru sinni í kvöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×