Handbolti

Ísland leikur við Færeyjar um helgina

Íslenska landsliðið mætir liði Færeyja í tvígang um helgina
Íslenska landsliðið mætir liði Færeyja í tvígang um helgina Mynd/Vilhelm

Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik mætir því færeyska í tvígang um næstu helgi. Hér er um að ræða æfingaleiki fyrir íslenska liðið sem er að undirbúa sig fyrir forkeppni HM sem fram fer í Rúmeníu í næstu viku.

Leikirnir tveir um helgina verða spilaðir í Framhúsinu í Safamýri. Sá fyrri verður klukkan 20 á föstudagskvöldið og hinn síðari klukkan 14:15. Áhugasamir geta nálgast frímiða á leikina í verslunum Lyfju.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×