Körfubolti

Jón Arnór aftur traustur í lokin

Körfubolti Jón Arnór Stefánsson hitti úr tveimur úrslitavítaskotum á lokasekúndunum í 78-77 útisigri Lottomatica Roma á VidiVici Bologna í ítalska körfuboltanum.

Í síðustu viku tryggði Jón sínu liði framlengingu með ótrúlegri þriggja stiga körfu af löngu færi en Rómarliðið vann síðan framlenginguna. Jón skoraði alls 7 stig á þeim 13 mínútum sem hann spilaði á sunnudaginn en hann var í villuvandræðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×