Körfubolti

Jón Arnór til Rómar

Jón Arnór hefur komið víða við á ferlinum og er nú enn að skipta um heimilisfang
Jón Arnór hefur komið víða við á ferlinum og er nú enn að skipta um heimilisfang Mynd/AntonBrink

Landsliðsmaðurinn Jón Arnór Stefánsson sem leikið hefur með Valencia á Spáni í vetur hefur náð samningi við ítalska körfuboltaliðið Lottomatica Roma á Ítalíu og vonir standa til um að hann verði klár í slaginn með liðinu í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöldið.

Jón Arnór er öllum hnútum kunnugur á Ítalíu eftir að hafa leikið með liði Napoli þar í landi og varð hann m.a. bikarmeistari með liðinu á síðustu leiktíð. Þetta kemur fram á vef körfuknattleikssambandsins í dag - www.kki.is




Fleiri fréttir

Sjá meira


×